Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Að minnsta kosti tíu á gjörgæsludeild með áverka vegna skógarelda

Read Full Article →

Hið minnsta tíu liggja á gjörgæslu með áverka eftir skógarelda sem geisað hafa nærri strandborginni Split í Króatíu. Á annan tug er minna meitt. Fólkið slasaðist þegar bætti í vind í morgun svo herti á eldunum sem æddu gegnum skóglendi, yfir vegi og að híbýlum fólks. Skógareldarnir við bæinn Lokva Rogoznica eru einhverjir þeir verstu í sögu Króatíu. Þegar hafa um 2.000 íbúar verið fluttir frá heimilum sínum meðan eldurinn gleypti í sig gróður, hús og farartæki, snemma í morgun. Einnig liðsinnti Rauði krossinn við að koma hundruðum ferðamanna í öruggt skjól. Neyðarhjálparstöðvum hefur verið komið upp í bæjunum Omis, Makarska og strandbænum Split. Heldur hefur dregið úr ofsanum eftir að vatni var steypt úr fjórum kanadískum flugvélum. Tæplega 3.000 slökkviliðsmenn glímdu við eldvegginn í nótt og urðu oft að horfa undan áganginum. Forsætisráðherrann Andrej Plenković heimsótti héraðið í morgun og sagði alla áherslu lagða á að vernda fólk og stuðla að uppbyggingu að hamförunum loknum. Eldar loga víðar á Balkanskaganum þar sem hitabylgja hefur gengið yfir með miklum þurrki. Met var slegið í Split í gær þegar hitinn fór í tæpar fjörutíu gráður. Slökkvilið hefur verið að störfum meðfram ströndum Svartfjallalands og eldar loguðu skammt frá Tirana, höfuðborg Albaníu, í gær.

Share this article