Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ferðamenn fluttir burt á bátum vegna skógarelda

Read Full Article →

Um 500 ferðamenn voru fluttir burt frá ströndum Halkidiki-skaga nærri Thessaloniki á Grikklandi í gær, þegar skógareldar ógnuðu tveimur vinsælum ferðamannastöðum. Flytja varð ferðamennina burt á bátum því skógareldarnir nálguðust strendurnar. Sumir voru fluttir á nærliggjandi strendur og um 200 þeirra voru fluttir um borð í skip sem beið fyrir utan ferðamannastaðina. Um 200 slökkviliðsmenn börðust við skógarelda og fór slökkvistarf bæði fram á jörðu niðri og úr flugvélum og þyrlum. Búið er að ná stjórn á eldunum en tveir slökkviliðsmenn slösuðust við störf. Grísk yfirvöld hafa gefið út fimm viðvaranir vegna skógarelda á meginlandi Grikklands. Yfirvöld á Halkidiki-skaga hafa auk þess bannað almenningi að fara um furuskógana á svæðinu vegna eldhættu. Alvarlegt ástand í Lokva Rogoznica í Króatíu Þá þurftu íbúar og ferðamenn þurftu að yfirgefa bæinn Lokva Rogoznica, suður af borginni Split í Króatíu í gær vegna skógarelda. 150 slökkviliðsmenn börðust við eldana sem breiddust hratt út í furuskógum og gróðri vegna mikilla þurrka undanfarið. Slökkviliðsstjóri metur ástandið mjög alvarlegt og fleiri slökkvilið hafa verið kölluð út til að berjast við eldana. Langvarandi hiti hefur verið á þessum slóðum og hitamet fallið í fjölda borga og bæja. Fyrr um daginn voru flugvélar nýttar til að slökkva aðra gróðurelda á eyjunni Brač sem er fyrir utan hafnarborgina Split og Lokva Rogoznica.

Share this article