Innlent | mbl | 14.8.2026 | 12:19 „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Esa Härmälä á málþinginu í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Beint: Sérfræðingar deila reynslu af Evrópumálum Bankinn finnur fyrir samkeppni ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Ekki betur borgið innan ESB » Fleiri tengdar fréttir „Ef þið ákveðið að semja, þá verið vel undirbúin og semjið af alvöru. Ef land ykkar semur ekki af alvöru mun ESB ekki taka möguleika sína á sveigjanleika alvarlega, svo einfalt er það.“ Þetta voru lokaorð Esa Härmälä, finnsks sérfræðings í landbúnaðar- og Evrópumálum, til Íslendinga þegar hann fjallaði um reynslu Finna af aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þá sérstaklega samningaviðræðum um landbúnað, á málþingi Bændasamtaka Íslands í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um það hvort Ísland taki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Härmälä gegndi lykilhlutverki í aðildarviðræðum Finnlands við ESB og var einn helsti hugmyndasmiður hins norðlæga stuðnings við finnskan landbúnað. Hann sagði stöðu landbúnaðarins hafa verið afar erfiða þegar aðildarferlið hófst. „Allt frá upphafi virtist ómögulegt að finna jákvæða lausn fyrir landbúnaðinn. Það var ljóst að Finnland sótti ekki um aðild vegna landbúnaðarins og hagsmuna hans, heldur þrátt fyrir þá.“ Härmälä sagði bændur ekki hafa getað ráðið því hvort Finnland gengi í ESB. Restin af þjóðinni myndi ákveða það og það að ganga óundirbúin í ESB hefði haft skelfilegar afleiðingar fyrir landbúnaðinn. Frétt af mbl.is Beint: Sérfræðingar deila reynslu af Evrópumálum Frétt af mbl.is Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Þurftu að fara yfir 30.000 blaðsíður Hann lagði mikla áherslu á umfang undirbúningsins. Landbúnaðarráðuneytið, sem áður hafði verið eitt þjóðlegasta og minnsta alþjóðlega ráðuneyti Finnlands, hefði skyndilega verið komið í fremstu víglínu alþjóðlegra samningaviðræðna. „Það þurfti að fara í gegnum 30.000 blaðsíður af landbúnaðarlöggjöf ESB. Stórir hlutar hennar voru á þeim tíma jafnvel aðeins til á frönsku,“ sagði sá finnski og ítrekaði að það væri eitt þeirra atriða sem Íslendingar þyrftu að hafa sérstaklega í huga. Frétt af mbl.is Afleiðingar valdaafsals í landbúnaði Andstæðingar aðildar tóku þátt Härmälä sagði sérstaklega mikilvægt að þeir sem voru andvígir aðild hefðu tekið fullan þátt í undirbúningi samninganna og að samningsmarkmiðum. Bændasamtökin töldu of áhættusamt að láta ríkisstjórninni það einni eftir að hans sögn. Þannig hafi skapast fullt samstarf og kraftar verið sameinaðir. „Við erum lítið land með takmörkuð úrræði en hægt væri að sameina þau úrræði.“ Frétt af mbl.is Afurðaverðið fellur Ekki samningaviðræður jafningja Finninn varaði jafnframt við því að samningaviðræður við ESB væru ekki viðræður jafningja og rifjaði upp hvernig Finnar hefðu á erfiðum stundum verið minntir á hvor aðilinn væri að sækjast eftir aðild. „Heyrðu, er það virkilega svo að þú haldir að Evrópusambandið vilji ganga í Ísland?“ sagði Härmälä að gæti orðið viðmótið og sagði að nýr umsækjandi að klúbbnum yrði að samþykkja reglurnar. Stundum hafi tekist að ná málamiðlun við fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar sem síðan hefði verið hafnað af öðrum innan framkvæmdastjórnar eða af aðildarríkjunum. Frétt af mbl.is Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Landbúnaðurinn réð úrslitum Hann sagði landbúnaðinn hafa verið eitt erfiðasta málið í aðildarviðræðum Finna og samkomulag ekki náðst fyrr en á lokametrunum árið 1994. Niðurstaðan meðal annars hinn svokallaði norræni stuðningur, sem heimilar hærri stuðning við landbúnað á skilgreindum svæðum í Finnlandi og Svíþjóð. Þá sagði hann reynsluna sýna að samningaviðræðum væri ekki lokið þótt pólitískt samkomulag hefði náðst. Þeim væri aðeins lokið þegar allt hefði verið skráð niður í formi lagatexta. Frétt af mbl.is Innleiða þarf allt reglusafn ESB Betri niðurstaða en búist var við Nú þremur áratugum eftir inngöngu Finnlands telur Härmälä að lausnin fyrir finnskan landbúnað hafi í stórum dráttum gengið upp. „Framleiðslumagn, í stórum dráttum, hefur haldist og heildinni í mismunandi matvælakeðjum, frá akri á borð, höfum við getað viðhaldið.“ Um 80% matar sem seldur er í Finnlandi sé enn finnskur og það sé betri niðurstaða en menn hefðu búist við. Hann tók þó skýrt fram að hann væri ekki að ráðleggja Íslendingum að ganga í Evrópusambandið. „Eins og ég sagði þá gef ég engar ráðleggingar um hvað þið ættuð að gera. Það er ykkar höfuðverkur, en ef þið ákveðið að semja, þá verið vel undirbúin og semjið af alvöru.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Beint: Sérfræðingar deila reynslu af Evrópumálum Bankinn finnur fyrir samkeppni ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Ekki betur borgið innan ESB » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Varnaræfingin „Norður-Víkingur“ fer fram hér á landi í ágúst Stjóri City vildi lítið tjá sig Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þess vegna fer um mann ónotatilfinning“ Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Saka Trump um lygar Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Var alblóðugur á gangi í miðbænum Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Varnaræfingin „Norður-Víkingur“ fer fram hér á landi í ágúst Stjóri City vildi lítið tjá sig Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Bendir á fangelsisyfirvöld: „Heimild, ekki skylda“ „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Fiskurinn hvarf í skammnættinu Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Var alblóðugur á gangi í miðbænum Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna