Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gáfu út skulda­bréf með hæstu ávöxtunar­kröfu síðan 2001

Read Full Article →

Bandaríska ríkið gaf í gær út 30 ára ríkisskuldabréf á hæstu ávöxtunarkröfu sem sést hefur frá árinu 2001. Að sögn Financial Times hafa fjárfestar vaxandi áhyggjur af ört hækkandi skuldum ríkisins og þrálátri verðbólgu. Við útboð 30 ára skuldabréfa fyrir 25 milljarða dala fór ávöxtunarkrafa bréfanna í 5,22%. Hún hefur ekki verið hærri síðan í ágúst 2001, þegar hún nam 5,52%. Til samanburðar var ávöxtunarkrafan 5,06% í júlí og 4,91% skömmu áður en Donald Trump hóf sitt annað kjörtímabil í janúar á síðasta ári. Skuldir Bandaríkjanna nálgast nú 40 þúsund milljarða dala og hlutfall þeirra af landsframleiðslu stefnir í sögulegt hámark. Stríð Bandaríkjanna við Íran hefur jafnframt hækkað orkuverð og kostnað heimila og fyrirtækja. Verðbólga stóð í 4,2% í maí, sú mesta í þrjú ár, en hefur síðan lækkað og mældist 3,4% í júlí. Hún er þó enn langt yfir markmiði Seðlabankans. Tollahækkanir og mikil fjárfesting í innviðum fyrir gervigreind hafa aukið verðbólguþrýstinginn enn frekar. Ávöxtunarkrafa í útboði tíu ára ríkisbréfa á miðvikudag var einnig sú hæsta frá 2007. Ríkisskuldir og vaxtakostnaður hafa nær tvöfaldast á áratug, meðal annars vegna útgjalda í heimsfaraldrinum. Nú greiðir ríkið meira í vexti en það ver til landvarna. Trump hét því að koma böndum á ríkisfjármálin en skuldir hafa aukist hratt eftir umfangsmiklar skattalækkanir ríkisstjórnarinnar. Fjárlagaskrifstofa Bandaríkjaþings áætlar að skuldahlutfallið fari yfir 106% fyrir lok áratugarins og verði 120% árið 2036. Eftirspurn eftir löngum skuldabréfum er enn stöðug vegna hárrar ávöxtunar. Tilboðin í útboði gærdagsins námu meira en tvöfaldri þeirri fjárhæð sem í boði var. Fjármálaráðuneytið hyggst halda útgáfu langtímabréfa óbreyttri næstu ársfjórðunga og mæta aukinni fjárþörf fremur með skammtímavíxlum. Það gerir skuldirnar hins vegar viðkvæmari fyrir vaxtasveiflum. Sjá einnig Lántökukostnaður Bandaríkjanna ekki hærri í 19 ár

Share this article