Mannanafnanefnd hefur á síðustu vikum samþykkt tólf ný eiginnöfn sem færð verða á mannanafnaskrá. Í síðasta mánuði var kvennafnið Mila samþykkt og karlmannsnafnið Araþon. Níu nöfn voru samþykkt á fundi nefndarinnar þann 30. júlí. Af þeim voru fimm karlmannsnöfn; Hugríkur, Örri, Jean, Lerkir, og Húrinn. Þrjú kvennöfn voru samþykkt; Rúa, Drangey og Aelía. Þar að auki var eiginnafnið Blóm samþykkt. Það verður fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn. Á miðvikudag samþykkti nefndin svo karlkynsnafnið Herner.