Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndi bæta allt að 4,4 kr. við lítrann

  • What: Potential increase in fuel prices due to storage costs
  • Impact: Consumers may see higher gas prices in the future
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.8.2026 | 14:14 Myndi bæta allt að 4,4 kr. við lítrann Ef útreikningarnir stemma myndu 90 daga birgðir hækka eldsneytisverðið við dæluna um hér um bil 2%. mbl.is/Karítas Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íran Saka Trump um lygar Tveir ráðherrar urðu eftir um borð í tálbeitunni Segir Bandaríkin hafa fulla stjórn á Hormússundi Segja að sundið verði áfram lokað Hulunni svipt af leyniflugi Trumps » Fleiri tengdar fréttir Útreikningar Umhverfis- og orkustofnunar benda til þess að kostnaðurinn við það að geyma 90 daga neyðarbirgðir af eldsneyti í landinu myndi nema um 2,3 til 4,4 kr. á hvern seldan lítra. Miðað við bensínverð í dag myndi þetta jafngilda allt að 2% verðhækkun við dæluna en lítrinn kostar í dag frá rúmlega 190 kr. upp í 231 kr. Sérfræðingar, sem Morgunblaðið ræddi við, en vildu ekki láta nafns síns getið, segja útreikninga olíufélaganna sjálfra benda til þess að kostnaðurinn yrði umtalsvert hærri. Eins og blaðið fjallaði um í vor spannst mikil umræða í kjölfar Íransstríðsins um að koma þyrfti upp a.m.k. 90 daga neyðarbirgðum eldsneytis en Ísland sker sig frá nágrannalöndunum að því leyti að vera ekki með neinar eiginlegar neyðarbirgðir. Birgðahaldið er núna alfarið á herðum seljenda og ræðst af þeirra eigin rekstrarákvörðunum. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sagðist í vor ætla að leggja fram frumvarp um þessi mál með haustinu og ljóst að frumvarpsins er beðið með eftirvæntingu. Ólíkir útreikningar Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir samhljóm um að mikilvægt sé að tryggja ásættanlegar neyðarbirgðir í landinu en velja þurfi skynsamlega leið að settu marki. „Það þarf að tryggja að þeir taki þátt í að móta um þetta reglur sem hafa réttu reynsluna og þekkinguna og vita hvað getur gerst á mörkuðum þegar óvissuástand skapast,“ segir hann og bætir við að mikill kostnaður geti fylgt því að stækka birgðirnar. Því verði stjórnvöld að vanda sig. „Þetta er verkefni sem ekki verður leyst eingöngu af sérfræðingum hjá ráðuneytinu án aðkomu sérfræðinga í olíugeiranum.“ Benedikt staðfestir að verulegur munur sé á útreikningum olíufélaganna og stjórnvalda á því hve mikill kostnaður geti fylgt því að koma upp 90 daga olíubirgðum. Forsendur útreikninga stjórnvalda liggja ekki fyrir að svo stöddu og því erfitt að benda á hvað gæti skýrt muninn á niðurstöðunum. „Eftir því sem birgðatíminn er lengdur umfram það sem hann er í dag eykst ekki bara geymslukostnaðurinn, s.s. ef reisa þarf nýja tanka, heldur eykst einnig fjármögnunarkostnaðurinn vegna kaupa á umframbirgðunum,“ segir hann. Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. mbl.is/Árni Sæberg Duga tankarnir? Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins sagði Umhverfis- og orkustofnun að minnisblað vegna neyðarbirgða eldsneytis væri enn í drögum og hluti af vinnu vð þau fælist í að greina kostnað við aukið birgðahald. Stofnunin segir kostnaðinn geta verið misháan eftir því hvernig innleiðingu er háttað. Annars vegar mætti geyma meiri birgðir innanlands og hins vegar kaupa svokallaðar birgðaávísanir erlendis. „Í greiningunni var tekið tillit til geymslukostnaðar, fjármagnskostnaðar og verðs birgðaávísana eftir atvikum,“ segir í svarinu. Viðmiðið um 90 daga birgðir er fengið úr evrópsku regluverki og vekur Benedikt athygli á að athuga þurfi hvernig geymslurými er þar skilgreint. „Í evrópskum reglum teljast eldsneytisbirgðir á sölustað ekki með, en þar hefur Ísland ákveðna sérstöðu enda landið dreifbýlt og birgðir geymdar á sölustöðum víðs vegar um land. Þá er mögulegt að olíufélögin eigi nú þegar nægilegt geymslurými til að geta haldið 90 daga birgðum í sínum tönkum án frekari stækkunar.“ Benedikt áréttar að það geti verið flóknara en það virðist í fyrstu að koma upp og viðhalda eldsneytisbirgðum, og rétt eins og taka verði tillit til fjármögnunarkostnaðar þurfi líka að hafa hliðsjón af verðsveiflum á alþjóðamarkaði. „Þegar upp koma áföll eins og lokun Hormússunds hafa söluaðilar þá tilhneigingu að halda meira í birgðir sínar en ella og framleiðslukostnaður olíuhreinsistöðvanna hækkar svo það verður margfalt dýrara en í venjulegu árferði að eiga stórar eldsneytisbirgðir,“ útskýrir hann. „Ísland er líka frábrugðið mörgum öðrum ríkjum Evrópu að því leyti að vera ekki með olíuhreinsistöð. Lönd eins og Þýskaland, sem starfrækja 11 hreinsistöðvar, eru með mjög takmarkað magn af fullunnu eldsneyti í sínum forða og geyma sínar varabirgðir í formi hráolíu. Sömu sögu er að segja um Bandaríkin þar sem varabirgðirnar eru hráolía sem dælt hefur verið í gamlar saltnámur og hægt er að vinna í eldsneyti og aðrar afurðir ef til þess kemur. Mun hagkvæmara er að hafa neyðarbirgðirnar í formi hráolíu, en í tilviki Íslands værum við að halda birgðir af fullunninni vöru sem er mun dýrara.“ Birgðahaldið flækist síðan enn frekar út af stórum og smáum sveiflum sem ráðast af ytri aðstæðum. „Það er algengt að sveiflan á eldsneytismarkaði geti verið í kringum 50% og veltur t.d. á árstíðum og atburðum á alþjóðavettvangi,“ segir Benedikt og bendir jafnframt á að helstu spár geri ráð fyrir því að til lengri tíma eigi eldsneytisverð eftir að fara hækkandi í takt við hækkandi framleiðslukostnað. Því megi vænta þess að kostnaðurinn við birgðahaldið aukist í réttu hlutfalli. Óvissuástand Umhverfis- og orkustofnun hefur reiknað út að 90 daga birgðir kosti 2,3 til 4,4 kr. á lítra. Kostnaðurinn felst meðal annars í fjármagnskostnaði vegna kaupa á eldsneyti sem situr óhreyft. SVÞ segir fjölda flókinna þátta koma við sögu og brýnt sé að velja skynsamlega útfærslu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Íran Saka Trump um lygar Tveir ráðherrar urðu eftir um borð í tálbeitunni Segir Bandaríkin hafa fulla stjórn á Hormússundi Segja að sundið verði áfram lokað Hulunni svipt af leyniflugi Trumps » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mögulega skordýr í frosnum hindberjum Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn Arteta talaði hreint út Myndi bæta allt að 4,4 kr. við lítrann Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn á Höfn Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Saka Trump um lygar Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Mögulega skordýr í frosnum hindberjum Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn Arteta talaði hreint út Myndi bæta allt að 4,4 kr. við lítrann Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn á Höfn Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Væntingar um að rannsókn verði felld niður Ekki eiginlegar samningaviðræður „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna

Share this article