Security News

Cybersecurity news aggregator

🍎
LOW News Viðskiptablaðið

Minnis­kubbar leiða til verðhækkana hjá App­le

  • What: Apple to raise prices due to memory chip costs
  • Impact: Potential price increases for iPhone 18 and other devices
Read Full Article →

Tæknirisinn Apple hefur tilkynnt að fyrirtækið muni hækka verð á vörum sínum á næstunni vegna hækkandi kostnaðar á minniskubbum. Á vef WSJ segir að verðlag minniskubba hafi hækkað töluvert vegna aukinnar notkunar á gervigreind. Tim Cook, forstjóri Apple, segir verðhækkanir óumflýjanlegar og bætir við að minniskubbar hafi fjórfaldast í verði á einu ári vegna mikillar samkeppni á gervigreindarmarkaði. Forstjórinn gaf ekki upp nákvæmar upplýsingar um tilteknar verðhækkanir en líklegt er að verðhækkunin muni hafa áhrif á iPhone 18-símann sem verður kynntur í september. Verðhækkanir á Mac-tölvum og iPad-spjaldtölvum gætu hins vegar komið á undan. Sjá einnig Útiloka ekki verðhækkanir á örgjörvum Samkvæmt rannsóknarfyrirtækinu TechInsights gætu verðhækkanirnar bætt allt að 270 dölum, eða um 34.000 krónum, við heildarverð á næsta iPhone-síma.

Share this article