Innlent | mbl | 14.8.2026 | 13:59 Áfram streyma almyrkvagestir í gegnum Leifsstöð Röð náði niður fyrir rúllustigann upp að öryggisleitinni í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk „Það eina sem mér líkar ekki við er veðrið“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Setja 630 milljónir í markaðssetningu » Fleiri tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 Um 125 þúsund manns eltu almyrkvann til landsins Fiskurinn hvarf í skammnættinu Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Þyrla lenti við Dynjanda: „Trúði ekki mínum eigin augum“ Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann » Fleiri tengdar fréttir Í gær myndaðist lengsta röð í manna minnum á Keflavíkurflugvelli er ferðamenn sem eltu almyrkvann til landsins tóku að gera sér leið út úr landinu. Þegar mest lét var biðtími í öryggisleit flugvallarins 45 mínútur. Ferðamenn héldu áfram að streyma í gegnum öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli í stórum stíl í dag, þó var álagið ekki alveg jafn mikið og í gær. Biðtími um 35–40 mínútur þegar verst lét Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir í samtali við mbl.is að svipað hafa verið uppi á teningnum í dag og í gær. Þó virðist hafa dreifst betur úr farþegum yfir daginn. „Við upplifðum ekki að það væru jafn stórir hópar af fólki að koma á svipuðum eða sama tíma og í gær,“ segir Guðjón. Þó hafi vissulega myndast langar raðir sem náð hafi niður að rúllustiganum upp að öryggisleitinni. Það er þó ekki í líkingu við raðirnar sem mynduðust í gær sem náðu út fyrir flugstöðina á tímabilum. Guðjón segir að lengsti biðtíminn fyrir hádegi í dag hafi verið um 35 til 40 mínútur. „Við erum að tala um að þetta hafi verið á bilinu sjö til átta þúsund farþegar sem fóru í gegnum öryggisleit hjá okkur í morgun. Það eru hátt í 2.000 fleiri farþegar en á t.d. fimmtudaginn eða föstudaginn í síðustu viku.“ Frétt af mbl.is Öryggisleitarröð náði út fyrir Leifsstöð Morgundagurinn verður rólegri Segir hann að ekki sé um að ræða fleiri flugvélar, heldur skýrist ástandið af góðri sætanýtingu og fáum tengifarþegum, ásamt því auðvitað að eltingaleiknum við almyrkvann er lokið. Guðjón segir mönnun á flugvellinum hafa verið í samræmi við þann fjölda sem fór um völlinn. „Það kemur ekki í veg fyrir að það myndist raðir, en þetta gekk allt bara hratt og skilvirkt fyrir sig.“ Telur hann það versta vera afstaðið, morgundagurinn verði líklega eins og aðrir laugardagar í sumar miðað við þær upplýsingar sem Isavia hefur og mönnun verði í samræmi við það. Guðjón setur biðtíma dagsins í dag og í gær í öryggisleitina í áhugavert samhengi. Samkvæmt tölulegum upplýsingum Isavia hafa 92% farþega í sumar ekki þurft að bíða í meira en 10 mínútur við öryggisleitina og 97% hafa beðið í undir 15 mínútur. „Það eru þá 3% sem eru yfir fimmtán mínútum og þarna koma þessir tveir dagar þar sem þetta er töluvert ríflegra en 15 mínútur.“ Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk „Það eina sem mér líkar ekki við er veðrið“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Setja 630 milljónir í markaðssetningu » Fleiri tengdar fréttir Sólmyrkvi 2026 Um 125 þúsund manns eltu almyrkvann til landsins Fiskurinn hvarf í skammnættinu Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Þyrla lenti við Dynjanda: „Trúði ekki mínum eigin augum“ Myndskeið: Flugu skýjum ofar til að fanga almyrkvann » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mögulega skordýr í frosnum hindberjum Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn Arteta talaði hreint út Myndi bæta allt að 4,4 kr. við lítrann Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn á Höfn Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB-aðild opnar á erlend yfirráð Ekki betur borgið innan ESB „Þess vegna fer um mann ónotatilfinning“ Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Mögulega skordýr í frosnum hindberjum Vígðu nýtt hjúkrunarheimili á Höfn Arteta talaði hreint út Myndi bæta allt að 4,4 kr. við lítrann Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn á Höfn Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Ragna sendir boltann aftur til stjórnvalda Væntingar um að rannsókn verði felld niður „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna