Aukin loftrýmisgæsla verður vegna almyrkvans. Fjöldi loftfara verður á sveimi seinnipartinn á morgun, aðallega yfir Vestfjörðum. Þyrluþjónustur hafa í nógu að snúast og sölumenn þurfa að svara fólki sem er tilbúið að yfirbjóða þá sem þegar eiga bókaða ferð. „Við erum búin að undirbúa þetta vel,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri ISAVIA innanlandsflugvalla. „Við erum búin að vera að undirbúa þetta síðan í mars. Við erum búin að vera í nánu sambandi við almannavarnir og flugrekendur varðandi það flug sem er áætlað og planað á morgun.“ Þjónustutímar á flugvöllum á Ísafirði og Bíldudal hafa verið lengdir og svo er gert ráð fyrir mikilli flugumferð við Rif á Snæfellsnesi. Þá er flugstjórnarmiðstöðin með aukin viðbúnað. „Vegna aukinnar umferðar í loftrýminu okkar. Þannig að við erum búin að hækka viðbúnaðarstigið í flugturninum hérna á Reykjavíkurflugvelli, á Keflavíkurflugvelli og í flugstjórnarmiðstöðinni því það má búast við aukinni umferð í kringum landið á þessum tíma,“ segir Sigrún Björk. Síminn hringir stanslaust hjá þyrluþjónustufyrirtækjum og fyrirspurnum rignir inn. Fólk vill komast vestur á firði og lenda á stöðum þar sem engir vegir eru og sumir vilja vera á flugi meðan almyrkvinn er. „Það er því miður alveg fullbókað hjá okkur,“ segir Kristjana Ósk Pálsdóttir starfsmaður í söludeild Norðurflugs. „Og við erum með allar þyrlurnar á lofti allan daginn á morgun, frá morgni til kvölds. Þannig að það er því miður ekki lengur hægt að bóka hjá okkur fyrir morgundaginn.“ Sólmyrkvadagurinn hafi verið uppbókaður í meira en ár. „Kannski eitt og hálft ár. Bókanirnar byrjuðu að koma inn fyrir morgundaginn í janúar í fyrra,“ segir Kristjana. Álagið vegna fyrirspurna hafi ekki verið meira síðan í eldgosunum á Reykjanesskaga. „Við höfum fengið þónokkuð mörg símtöl þar sem fólk er að bjóða háar upphæðir til þess að taka við af flugunum ser eru nú þegar og sem sagt borga fyrir þeirra ferð og þá ferð sem þau vilja fá. En því miður þá þurfu við alltaf að standa við bókanirnar sem eru. Og þá eru bara nokkrir einstaklingar með þyrlurnar yfir allan daginn og þá lenda þyrlurnar bara ekki í Reykjavík á meðan og þá eru þau bara úti allan daginn og á meðan sólmyrkvinn gengur. Og hvað borgar fólk fyrir það? „Ég get nú ekki sagt það en það eru góðar upphæðir. Það eru háar upphæðir,“ segir Kristjana.