Dagurinn í dag og gærdagurinn voru með annasömustu dögum ársins á Keflavíkurflugvelli, en um fjórðungi fleiri farþegar fóru um flugstöðina fyrir hádegi þessa daga en að meðaltali. Isavia bætti við starfsfólki til að anna álaginu. „Það eru á bilinu 7-8.000 farþegar sem fara í gegnum öryggisleit núna á milli klukkan 7 og 12 á hádegi í dag og svipað í gær,“ sagði Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia í Leifsstöð í morgun. Það eru um 2.000 fleiri farþegar en venjulega á fimmtudögum og föstudögum á sumrin. Þetta lá fyrir með fyrirvara og bætt var við starfsfólki. „Þannig að það má segja að þetta sé einn af annasömustu dögum okkar á þessu ári og núna í sumar. Röðin sem myndaðist í gær og að hluta til í morgun er meira en við höfum séð.“ Fleiri farþegar - lengri bið Fleiri farþegum fylgir gjarnan lengri bið sem Guðjón segir að hafi verið að jafnaði um 45 mínútur. Eru einhver dæmi um að fólk hafi misst af sinni flugferð út af þessu? „Við höfum ekki heyrt af því að það hafi gerst.“ Nú hlýtur að liggja fyrir með einhverjum fyrirvara hversu margir eru að ferðast til og frá landinu á hverjum tíma og það ætti að vera tiltölulega auðvelt fyrir ykkur að bregðast við og vera undirbúin - engu að síður gerist þetta ítrekað. Afhverju er það? „Við erum mönnuð fyrir þann fjölda sem er að koma um flugstöðina og er vitað að kemur um flugstöðina - en það sem er mjög erfitt að átta sig á er hvenær farþegar kjósa að koma á flugvöllinn og mæta í innritun og bóka sig í flugið.0147 Er Isavia að standa sig nógu vel á álagstímum? „Já, við teljum það,“ segir Guðjón. „I´ve got a feeling...“ Flestir þeirra farþega sem fréttastofa tók tali á Keflavíkurflugvelli í morgun sögðust hafa mætt sérlega snemma á völlinn því þeir hefðu heyrt af langri bið. Meðal þeirra var Bandaríkjamaðurinn Brad Law sem kom hingað til að fylgjast með almyrkvanum. Hann mætti á flugvöllinn um fjórum tímum áður en vél hans átti að fara í loftið. Hann lýsti miklum troðningi og bjóst við langri bið - eða eins og hann orðaði það: „I've got a feeling that it's gonna be a long wait. It's gonna be a long day.“ Í sama streng tóku landar hans, hjónin Anne og Bill Blessing sem voru mætt tímanlega á flugstöðina. „Við fengum þær upplýsingar frá flugfélaginu okkar að það yrði margt um manninn hér í dag,“ sagði Anne.