Innlent | mbl | 14.8.2026 | 14:53 Lagt til að Eiríkur og Hildur verði skipuð dómarar við Landsrétt Eiríkur Elís Þorláksson og Hildur Briem. Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Eiríkur Elís Þorláksson verði skipaður dómari við Landsrétt frá 1. september 2026 og að Hildur Briem verði skipuð dómari við Landsrétt frá 5. október 2026. Eiríkur Elís Þorláksson lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og LL.M.-námi við King´s College í London árið 2008. Hann öðlaðist réttindi til málflutnings í héraði árið 2002 og fyrir Hæstarétti árið 2008. Þá lauk hann prófi til að teljast hæfur stjórnarmaður í vátryggingafélagi 2011, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins. Að loknu embættisprófi starfaði Eiríkur Elís um hríð hjá óbyggðanefnd en hóf árið 2002 störf á lögmannastofu þar sem hann starfaði til ársins 2011, þar af sem meðeigandi frá 2004. Frá 2012 hefur hann starfað við lagadeild Háskólans í Reykjavík, fyrst sem lektor en sem dósent frá 2017, auk þess sem hann hefur sinnt lögmannsstörfum samhliða á þeim tíma. Frá mars 2019 til apríl 2024 gegndi hann starfi deildarforseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík auk þess að sinna kennslu við aðra háskóla. Þá var hann settur dómari við Landsrétt samtals í um fjögurra mánaða skeið á árunum 2024 og 2025, og var varadómandi í Endurupptökudómi 2021-2026. Eiríkur Elís hefur jafnframt ritað fræðibækur í lögfræði og fjölda ritrýndra fræðigreina og setið í stjórnum ýmissa félaga, svo sem Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Stoða hf., í stjórn Bókaútgáfunnar Codex og gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands, þar af sem formaður frá 2022 til 2024. Eiríkur hefur verið settur dómari við Landsrétt frá 5. janúar 2026, segir enn fremur. Dómari við héraðsdóms og Landsrétt Hildur Briem lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2000, LL.M.-námi við Háskólann í Lundi árið 2005 og viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2022. Hún öðlaðist réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómi árið 2001. Að loknu embættisprófi starfaði hún sem fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík á ákærusviði embættisins en hóf störf hjá umboðsmanni Alþingis árið 2005 og starfaði þar til ársins 2008 þegar hún varð aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Austurlands. Hún var skipuð í embætti héraðsdómara og dómstjóra við Héraðsdóm Austurlands árið 2011 en árið 2018 fluttist hún í Héraðsdóm Reykjavíkur og hefur verið dómari þar síðan fyrir utan að hún var settur landsréttardómari í um sex mánaða skeið árið 2021. Hún hefur verið settur varadómari í Hæstarétti í fjórum málum og verið dómandi við Endurupptökudóm frá því í febrúar 2025. Hildur hefur sinnt stundakennslu í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands í um fjögurra ára skeið og setið í áfrýjunarnefnd ágreiningsmála á kirkjulegum vettvangi frá árinu 2016 og setið í stjórn Dómarafélags Íslands. Þá hefur hún tekið sæti í nokkrum málum hjá kærunefnd útboðsmála og verið skipuð í nefnd dómstólasýslunnar um réttarfar og skilvirkni dómstóla, segir að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lagt til að Eiríkur og Hildur verði skipuð dómarar Fimm ára landrisi í Öskju virðist lokið Mikil blóðtaka fyrir FH-inga Samúel borist hótanir frá Ísraelum Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fiskurinn hvarf í skammnættinu Lögnin órofin en gæti þurft að leggja aðra Ekki eiginlegar samningaviðræður Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Lagt til að Eiríkur og Hildur verði skipuð dómarar Fimm ára landrisi í Öskju virðist lokið Mikil blóðtaka fyrir FH-inga Samúel borist hótanir frá Ísraelum Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Umræðan Rautt eðal ginseng Peningamál og fjármál og að „axla ábyrgð“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Efndu loforðið 4.163 dögum síðar Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Bankinn finnur fyrir samkeppni Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Eigandi Bandero hefur ekki svarað Fiskurinn hvarf í skammnættinu Gunnar Þórðarson jarðsunginn Ekki betur borgið innan ESB Nei-hliðin í sókn Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Næsti almyrkvi á frídegi verslunarmanna Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Beint: Útför Gunnars Þórðarsonar Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna