- What: Recall of frozen berries due to potential insect contamination
- Impact: Consumers who bought the affected lot should return the product
Búið er að innkalla eina framleiðslulotu af þessum hindberjum.Krónan Matvælastofnun varar neytendur við einni lotu af frosnum hindberjum frá Grön Balance vegna skordýra sem mögulega geta leynst í pakkningunum. Krónan, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Mosfellsbæjar, hefur innkallað vöruna af markaði. Matvælastofnun vekur athygli á þessu á heimasíðu sinni . Best fyrir dagsetning á pakkningum hindberjanna er 19.03.2028. Fólk sem hefur keypt þessa framleiðslulotu getur skilað hindberjunum og fengið endurgreitt.