Samtök iðnaðarins vilja að Seðlabanki Íslands haldi stýrivöxtum óbreyttum. Framkvæmdastjóri samtakanna segir það stærsta verkefni stjórnvalda í vetur að ná tökum á efnahagsmálum. Vextir hafa verið hækkaðir tvisvar á þessu ári, um samtals hálft prósentustig. Peningastefnunefnd kynnir næstu ákvörðun á miðvikudag. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir aðhaldið mikið og hagkerfið að kólna. Staðan í byggingariðnaði sé viðkvæm og vanskil færist í aukana. Þá sé rétt að Seðlabankinn gefi aðilum vinnumarkaðarins svigrúm þar sem vinna við endurskoðun kjarasamninga hefst um mánaðamótin. Vaxtaákvarðanir taka langan tíma að skila sér, segir Sigurður. Því sé best að staldra við og halda vöxtum óbreyttum. „Það er mælt í mánuðum og jafnvel árum þannig að við teljum að það sé rétt núna að hinkra við og sjá hvernig þróunin verður næstu vikurnar, þar til peningastefnunefnd kemur aftur saman í október.“ „Hlýtur að vera stærsta verkefni stjórnvalda í vetur“ Samstillt átak og þjóðarsátt eru forsendur þess að hægt verði að ná tökum á efnahagsmálum, segir Sigurður. Ráðast þurfi í margvíslegar aðgerðir, meðal annars með því að skapa fyrirtækjum góð skilyrði til reksturs. Þannig verði til umsvif í hagkerfinu til að standa straum af þeirri þjónustu sem hið opinbera vill beita og samfélagið óskar eftir. „Ég myndi segja að þetta sé stóra viðfangsefnið á Íslandi í dag. Því það er auðvitað óásættanleg staða að við séum með þráláta verðbólgu sem er yfir 5%, að stýrivextir séu tæplega 8% og að það sjáist varla til lands í þeim efnum. Þannig að þetta hlýtur að vera stærsta verkefni stjórnvalda í vetur, að ná tökum á efnahagsmálum,“ segir Sigurður. Samtök iðnaðarins hafa bent á að stjórnendur fyrirtækja og almenningur hafi ekki verið svartsýnni í garð efnahagslífsins frá því á tímum heimsfaraldurs. Sigurður segir efnahagsstöðuna stóra örsök þess að fólk hafi minni trú á framtíðinni en áður. Þó sé ekki öll von úti. „Hins vegar vil ég taka það fram að staðan á Íslandi er þannig ef við horfum nokkur ár fram í tímann og það er mjög bjart framundan. Við höfum öll tækifæri til þess að hér verði blómlegt samfélag og blómlegt efnahagslíf en við þurfum þá að taka málin í eigin hendur.“