Viðskipti | mbl | 14.8.2026 | 11:00 | Uppfært 11:20 Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Samtök iðnaðarins (SI) kalla eftir því að Seðlabankinn haldi meginvöxtum óbreyttum í næstu vaxtaákvörðun 19. ágúst. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Spá hækkun stýrivaxta Halla: „Mjög slæm tíðindi“ Verðbólgan verði yfir 5% næstu mánuði » Fleiri tengdar fréttir Samtök iðnaðarins (SI) kalla eftir því að Seðlabankinn haldi meginvöxtum óbreyttum í næstu vaxtaákvörðun 19. ágúst. Þrátt fyrir að verðbólga sé enn langt yfir markmiði bankans telja samtökin að frekari vaxtahækkanir geti verið of mikið aðhald við núverandi aðstæður. Meginvextir Seðlabankans eru nú 7,75% eftir tvær hækkanir á árinu, samtals um 0,5 prósentustig. Verðbólga mældist 5,3% í júlí og er því meira en tvöfalt verðbólgumarkmið bankans. Í tilkynningu frá SI benda samtökin hins vegar á að áhrif fyrri vaxtahækkana séu enn að koma fram í hagkerfinu og að mikilvægt sé að horfa fram á veginn þegar peningastefnan er ákveðin. Frétt af mbl.is Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Skjáskot/Samtök iðnarins Óbreyttir vextir væru skynsamleg ákvörðun „Stýrivextir eru háir, aðhaldið mikið og áhrif þess enn að koma fram í hagkerfinu. Óbreyttir vextir nú væru því ekki undanhald í baráttunni við verðbólgu heldur skynsamleg ákvörðun við aðstæður þar sem kostnaðurinn af of miklu aðhaldi getur orðið verulegur,“ segir í tilkynningu samtakanna. Samtökin benda á að efnahagsstaðan hafi breyst hratt og að bæði fyrirtæki og heimili séu svartsýnni en áður. Atvinnuleysi hafi mælst 5% í júní, 2,1 prósentustigi meira en á sama tíma í fyrra. „Væntingavísitala Gallup mældist 49,2 í júní en var 112,6 í júní 2025. Vísitalan er nú langt undir 100 stigum, sem þýðir að svartsýnir neytendur eru mun fleiri en bjartsýnir en því var öfugt farið í júní í fyrra. Hið sama má lesa út úr niðurstöðum könnunar Gallup á væntingum stjórnenda fyrirtækja. Í könnun Gallup sem gerð var í júní síðastliðnum meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins telja aðeins 5% aðstæður í efnahagslífinu góðar en 64% telja þær slæmar. Í könnun Gallup sem gerð var í júní í fyrra töldu hins vegar 43% aðstæðurnar í efnahagslífinu góðar og 15% slæmar,“ segir í tilkynningunni. Segir þar enn fremur að sérstaklega viðkvæm staða sé í byggingariðnaði. Háir vextir, skattar og gjöld ásamt minni eftirspurn hafi dregið úr framkvæmdum og veikt fjárhagsstöðu fyrirtækja. Frétt af mbl.is Spá hækkun stýrivaxta Skjáskot/Samtök iðnarins Of harkalegt aðhald gæti unnið gegn markmiðum Samkvæmt samantekt SI námu skuldir greinarinnar hjá stóru viðskiptabönkunum þremur 476 ma.kr. um mitt ár. Þær höfðu þá aukist um 74 ma.kr. eða 18% frá áramótum. Alvarleg vanskil greinarinnar, vanskil í meira en 90 daga, námu 29,7 ma.kr. um mitt ár, samanborið við 9,3 ma.kr. um áramót. Vanskilahlutfallið hafði þannig hækkað úr 2,3% í 6,2% á fyrstu sex mánuðum ársins. „Frekari vaxtahækkun myndi hækka fjármagnskostnað greinarinnar enn frekar, þrengja að fyrirtækjum og dýpka samdráttinn. Afleiðingin yrði ekki aðeins minni fjárfesting og aukið atvinnuleysi til skemmri tíma heldur einnig minna framboð íbúða síðar. Það gæti aftur aukið verðþrýsting á húsnæðismarkaði þegar eftirspurn tekur við sér sem gæti haldið vöxtum hærri en ella. Of harkalegt aðhald getur þannig unnið gegn markmiðum peningastefnunnar til lengri tíma litið.“ Nánar á vef SI. Skjáskot/Samtök iðnarins Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Spá hækkun stýrivaxta Halla: „Mjög slæm tíðindi“ Verðbólgan verði yfir 5% næstu mánuði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Demókratar á hraðferð til vinstri og Trump kætist Sigurður Már Jónsson Þýskur bílaiðnaður í bakkgír Fleira áhugavert Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Öryggisleitarröð náði út fyrir Leifsstöð Umbúðareglur falla illa að Íslandi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Bankinn finnur fyrir samkeppni Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Snerti taug í mörgum í salnum Spá hækkun stýrivaxta Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Snerti taug í mörgum í salnum Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Happy Hydrate til nýrra eigenda Snerti taug í mörgum í salnum Brugðust þegar mest á reyndi Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Creditinfo Group kaupir EveryData Bankinn finnur fyrir samkeppni Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Pistlar » Sigurður Már Jónsson Demókratar á hraðferð til vinstri og Trump kætist Sigurður Már Jónsson Þýskur bílaiðnaður í bakkgír Fleira áhugavert Umbúðareglur falla illa að Íslandi Ekki eiginlegar samningaviðræður Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar Ekki betur borgið innan ESB Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Bankinn finnur fyrir samkeppni Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Snerti taug í mörgum í salnum Spá hækkun stýrivaxta Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Brugðust þegar mest á reyndi Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Sætara bragð fyrir Bandaríkin Spá hækkun stýrivaxta Snerti taug í mörgum í salnum Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Mishá gjöld fyrir séreignarsparnað Happy Hydrate til nýrra eigenda Snerti taug í mörgum í salnum Brugðust þegar mest á reyndi Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Creditinfo Group kaupir EveryData Bankinn finnur fyrir samkeppni Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs