Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kín­verska mafían tekur stakka­skiptum

Read Full Article →

Fíkniefna- og glæpaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (UNODC) hefur nýlega gefið út skýrslu sem greinir frá mikilli kerfisbreytingu innan skipulagðrar glæpastarfsemi í Suðaustur-Asíu undanfarinn áratug. Samkvæmt skýrslunni hefur glæpastarfsemin þróast frá staðbundnum glæpasamtökum yfir í samþætt, alþjóðlegt og tæknivætt glæpahagkerfi. Glæpamenn starfa nú samtímis á mörgum mörkuðum og samnýta fjármálakerfi, flutningsleiðir og aðra innviði. Fyrirtæki og net útvega til að mynda öðrum glæpamönnum svikakerfi, ólögmæta bankastarfsemi og leiðir til að færa pening á milli landa. Með öðrum orðum þurfa staðbundin glæpasamtök ekki lengur sjálf að hafa alla sérþekkinguna frá grunni. „Skipulögð glæpastarfsemi snýst í auknum mæli um að veita þjónustu frekar en smygl á varningi. Fíkniefnasmygl og aðrir hefðbundnir glæpamarkaðir eru enn umfangsmiklir, en vaxandi hluti tekna kemur frá þjónustustarfsemi, glæpainnviðum og stafrænum greiðslu- og uppgjörskerfum.“ Sjá einnig Stærsta aðgerð gegn peningaþvætti í sögu Singapúr UNODC segir að með þessari aðferð hafi glæpasamtök tileinkað sér sömu þróun og lögleg fyrirtæki og með aðgangi að tæknikerfum, peningaþvætti og öðrum innviðum geti þau breiðst út hraðar en lögregluyfirvöld geta brugðist við. Beita námsmenn þrýstingi Glæpastarfsemin hefur nýlega vakið sérstaka athygli hjá breska innanríkisráðuneytinu sem gagnrýnir breska háskóla fyrir að horfa fram hjá umfangsmiklum þrýstingi skipulagðra glæpasamtaka á kínverska námsmenn. Samkvæmt nýrri rannsókn hefur einn af hverjum átta kínverskum námsmönnum í landinu annaðhvort orðið fyrir þrýstingi af hálfu glæpasamtaka um að aðstoða þau með einhverjum hætti eða þekkja einhvern sem hefur verið beittur þrýstingi. David Wilson, svæðisstjórnandi hjá sérsveit breska innanríkisráðuneytisins, segir kínverska skipulagða glæpastarfsemi vera eina umfangsmestu afmörkuðu glæpaógn Bretlands, bæði út frá hefðbundinni löggæslu og frá sjónarhorni þjóðaröryggis. Niðurstöðurnar eru sláandi í ljósi þess að kínverskir námsmenn samsvara um 23% erlendra nemenda við breska háskóla. Þeir eru næststærsta þjóðerni erlendra námsmanna í landinu á eftir Indverjum. Ferlið byrjar yfirleitt þannig að glæpamenn nálgast námsmenn að fyrra bragði og gera þeim litla greiða, til dæmis með því að lána þeim lágar fjárhæðir. Eftir það geta þeir beitt þrýstingi og fengið þá til að taka til dæmis við bankamillifærslum. Sjá einnig Svindla á Kínverjum út um allan heim Kínverskir námsmenn og námsmenn frá Hong Kong eru þó sérstaklega berskjaldaðir gagnvart glæpasamtökum þar sem þau geta meðal annars nýtt fjölskyldutengsl og önnur tengsl í heimalandinu til að þrýsta á fórnarlömb. Barátta fyrir kínversk stjórnvöld Kínverska sendiráðið í Bretlandi segir stjórnvöld í Peking staðráðin í að berjast gegn glæpastarfsemi sem nær yfir landamæri, þar á meðal brotum sem beinast sérstaklega gegn námsmönnum. Sendiráðið segir að kínversk og bresk lögregluyfirvöld hafi átt í nánu samstarfi vegna slíkra mála og vonast til að efla samstarfið enn frekar. Baráttan er þó ekki ný af nálinni en kínverska ríkið hefur staðið í baráttu við skipulagða glæpastarfsemi í mörg hundruð ár. Kínverska mafían, eða Triads, á sér rætur að rekja til Shaolin-munka í klaustrum Qing-veldisins á seinni hluta 17. aldar. Eftir að hafa verið gerðir útlegðir lágu leiðir þeirra til Hong Kong þar sem stjórnmálastefna þeirra fékk að víkja fyrir glæpastarfsemi. Þegar kommúnistaflokkur Kína tók yfir landið árið 1949 hvarf glæpastarfsemin nánast alfarið af meginlandinu, en með efnahagsbreytingum undanfarinna áratuga fór aðdráttarafl skjóts gróða að sýna sig í Kína á ný. Glæpasamtökin hafa viðhaldið rótgrónum tengslum við kínversk samfélög víða um heim og með nýrri sviðsmynd gæti baráttan gegn þeim reynst afar erfið, sérstaklega þegar erfitt er að greina á milli glæpasamtaka og venjulegra fyrirtækja.

Share this article