Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kanna stuðning við hugsanlegan eftirmann Guterres

Read Full Article →

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman í dag til annarrar óformlegrar atkvæðagreiðslu um stuðning við stækkandi hóp þeirra frambjóðenda sem sækjast eftir því að leiða samtökin. Fimm konur og þrír karlar keppast um að taka við stjórnartaumum Sameinuðu þjóðanna þegar síðara fimm ára kjörtímabili Antonios Guterres lýkur um áramót. Arftakans bíður ærið verkefni þar sem samtökin standa frammi fyrir fordæmalausum óstöðugleika á alþjóðasviðinu og miklum fjárhagsvanda. Öryggisráðið er valdamesta stofnun Sameinuðu þjóðanna og öll ríkin fimmtán sem þar sitja greiða atkvæði um umsækjendurna í leynilegri kosningu. Fulltrúar þeirra geta greitt atkvæði með frambjóðanda, gegn eða sagst enga skoðun hafa. Tryggja þarf stuðning níu ríkja og forðast neitunarvald Frambjóðandi þarf að tryggja sér stuðning níu ríkja og ekki nóg með það því viðkomandi þarf einnig að forðast að ríki með neitunarvald beiti því. Bandaríkin, Bretland, Kína, Frakkland og Rússland geta ráðið því hver verður næsti framkvæmdastjóri. Allsherjarþingið þarf loks að staðfesta valið. Atkvæðagreiðslan getur gefið vísbendingar um hvert stefni en ólíklegt er að nokkur tryggi sér öruggt forskot, hefur AFP eftir Daniel Forti, yfirmanni málefna SÞ hjá greiningar- og friðarsamtökunum International Crisis Group. Líklegt sé að ríkin með neitunarvald bíði með að lýsa afstöðu sinni á meðan nýir frambjóðendur gætu komið fram. Ekki sé heldur ólíklegt að einhverjir dragi sig til baka eftir atkvæðagreiðsluna. Rebeca Grynspan, forstöðumaður Viðskipta- og þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, fyrrverandi varaforseti Kosta Ríka, var efst á blaði eftir fyrstu atkvæðagreiðsluna í síðasta mánuði. Rafael Grossi frá Argentínu, framkvæmdastjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunnarinnar, er einnig í hópi frambjóðenda, ásamt þeim Michelle Bachelet frá Síle, Mariu Fernöndu Espinosa frá Ekvador, Carolyn Rodrigues-Birkett frá Gvæjana, Olara Otunnu frá Úganda og Macky Sall, umdeildum stjórnmálamanni frá Senegal. Ivonne A-Baki frá Ekvador bættist í hóp frambjóðenda eftir fyrri atkvæðagreiðsluna. Valið á nýjum framkvæmdastjóra getur tekið margar vikur til viðbótar. Hefð er fyrir því að embætti framkvæmdastjórans gangi á víxl milli heimsálfanna. Út frá því sjónarmiði ætti embættið að falla í skaut frambjóðanda frá Rómönsku Ameríku.

Share this article