Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,18% í viðskiptum dagsins á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Sjö félög lækkuðu, átta hækkuðu og tólf stóðu í stað. Gengi Alvotech hækkaði um 1,9% og stendur í 493 krónum á hlut. Gengi félagsins hefur hækkað um rúm 20% frá miðjum júlí. Gengi JBT Marel hækkaði um 2,1% í dag, mest allra félaga, en í gær stóð gengi félagsins í 14.300 krónum á hlut, sínu lægsta gildi síðan í júní á síðasta ári. Gengi Amaroq lækkaði mest allra félaga á aðalmarkaði, um 2,2%. Gengi félagsins hefur þó hækkað um 22% síðastliðinn mánuð. Gengi Arion banka lækkaði um 1,1% og gengi Íslandsbanka um 0,8% Heildarvelta viðskipta dagsins var 849 milljónir króna. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 351 milljón króna, og Haga, 136 milljónir króna. Velta annarra félaga var innan við 70 milljónir króna.