Úrvalsvísitalan OMXI15 hækkaði um 0,13% í viðskiptum dagsins á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Tíu félög hækkuðu í viðskiptunum, tíu lækkuðu og sjö stóðu í stað. Gengi Alvotech hækkaði mest í dag, um 4% í 59 milljóna króna veltu. Gengi félagsins stendur nú í 490 krónum á hlut en félagið birtir uppgjör fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða vestanhafs seinna í kvöld. Gengi Oculis hækkaði um 2,2% og stendur í 1.610 krónum á hlut. Eik fasteignafélag hækkaði um 1,4% en félagið birti uppgjör fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða í gær. Gengi félagsins stendur nú í 14,8 krónum á hlut. Gengi Kviku banka lækkaði mest, um 1,9%, og gengi JBT Marel um 1,4% en lækkun annarra félaga var innan við 1%. Heildarvelta viðskipta dagsins nam 2,4 milljörðum króna. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 530 milljónir króna, Eikar, 300 milljónir króna, og Reita, 220 milljónir króna.