Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þór/KA með öruggan sigur á Víkingum sem eru á botninum

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 31 mínútuÍÞRÓTTIR Fótbolti Þór/KA með ör­ugg­an sigur á Vík­ing­um sem eru á botn­in­um Anna Sigrún Davíðsdóttir Víkingur tók á móti Þór/KA í 16. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Akureyringar voru sterkari aðilinn og unnu 3-0 sigur. Mörkin skoruðu Hildur Anna Birgisdóttir, Erin Flurey og Hulda Ósk Jónsdóttir. Sigurinn er dýrmætur fyrir Þór/KA sem var aðeins tveimur stigum frá fallsæti. Stigin þrjú lyfta liðinu upp í sjötta sæti deildarinnar. Víkingur er eftir sem áður á botni deildarinnar með 11 stig, tveimur á eftir Val. Þór/KA vann 3-0 sigur á Víkingum í kvöld. Mummi Lú Fyrir 13 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Mikill meiri­hluti ákveð­inn í af­stöðu sinni Stjórnmálafræðingur segir ekki koma á óvart að mikill meirihluti kjósenda sé búinn að ákveða sig svo stuttu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún segir umræðuna harða en að mikið af góðu og upplýsandi efni sé í boði. Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Til umræðu að fram­lengja lækkun virð­is­auka­skatts á elds­neyti Ríkisstjórnin hefur rætt hvort framlengja ætti tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti en ákvörðun liggur ekki fyrir. Aðkomu Alþingis þyrfti til. Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hér­aðs­sak­sókn­ari fær að rann­saka Jón Óttar Landsréttur féllst ekki á kröfu Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns, um að embætti og starfsmenn héraðssaksóknara væru vanhæfir í rannsókn á meintum mútubrotum og peningaþvætti þegar hann starfaði fyrir Samherja. Fyrir 37 mínútumÍÞRÓTTIR Hjólreiðar Bresk­ur hjól­reiða­mað­ur lést eftir slys í keppni Breski hjólreiðamaðurinn Finlay Tarling er látinn eftir slys sem átti sér stað í Volta a Portugal hjólreiðakeppninni. Tarling var 19 ára gamall. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Luigi Mangi­one játar að hafa skotið for­stjóra United He­al­t­hcare Luigi Mangione játaði í dag fyrir alríkisdómstóli í Bandaríkjunum að hafa skotið Brian Thompson, forstjóra sjúkratryggingafyrirtækisins UnitedHealthcare, til bana í New York árið 2024. Saksóknarar krefjast lífstíðarfangelsis. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Vand­ræða­úlf­ur­inn skot­inn í Dan­mörku Ástrós Signýjardóttir Úlfur, sem hefur gert íbúum á Vestur-Jótlandi í Danmörku lífið leitt frá byrjun mánaðar, var skotinn í gærkvöld. Úlfurinn, sem hafði meðal annars sést nærri barnaleiksvæði, í húsagörðum og nærri veitingastað í útjaðri bæjarins Nørre Nebel, var skotinn af tíu metra færi af starfsmanni Umhverfisstofnunar Danmerkur. Hans hafði meðal annars verið leitað með drónum. Úlfsins hafði meðal annars orðið vart við ærslabelg á barnaleiksvæði. Skjámynd DR / Per Sønderby Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Bændur taka af­ger­andi af­stöðu gegn við­ræð­um um ESB-aðild Íslenskur landbúnaður þyrfti að fá varanlegar undanþágur frá landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, kæmi til inngöngu. Þetta er mat Búnaðarþings sem telur að slíkar undanþágur séu ekki í boði og leggst gegn aðildarviðræðum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Íbúar Hel­sinki urðu 700 þúsund í nótt — borg­ar­stjór­inn fagnar há­stöf­um Helsinkibúar urðu 700 þúsund í nótt þegar hjónum fæddist barn á fæðingardeild borgarsjúkrahússins. Borgaryfirvöld ákváðu að færa nýja borgarbúanum peningagjöf sem nýtast á við nám síðar. Fjölgun borgarbúa er að mestu drifin áfram af aðfluttu fólki. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Nýr þjóð­ar­púls: Ekki mark­tæk­ur munur á fylk­ing­um Aðeins fleiri ætla að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Það er þó ekki tölfræðilega marktækur munur á fylkingunum tveimur. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Bloomberg: Banda­rík­in kanna holl­ustu NATÓ-ríkja við ut­an­rík­is­stefnu for­set­ans Bandaríkjastjórn hefur sent stjórnvöldum annarra NATÓ-ríkja spurningalista sem ætlað er að meta stuðning þeirra við utanríkisstefnu forsetans. Leiðtogar ríkjanna sjá könnunina sem hugmyndafræðilega þvingun til fylgispektar. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Stjórn­laga­ráð Frakk­lands sam­þykkti dán­ar­að­stoð en hafn­aði sam­fé­lags­miðla­banni Stjórnlagaráð Frakklands samþykkti í dag lög um rétt til dánaraðstoðar. Ráðið felldi jafnframt úr gildi bann við notkun samfélagsmiðla fyrir börn yngri en fimmtán ára. Frakklandsforseti hefur lagt áherslu á báða málaflokka. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Kanna af­stöðu dóm­stóla til sölu á vín­flösku og rútu áður en gengið er lengra Með því að ákæra Santé fyrir sölu á einni vínflösku og rútu af bjór gæti ákæruvaldið verið að reyna að fá skýra afstöðu dómstóla. Þegar dómur liggi fyrir sé hægt að ganga lengra. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Segja skýra stefnu í land­bún­aði nauð­syn­lega ætli Ísland í ESB Möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu og áhrif á landbúnað voru rædd á opnum fundi Bændasamtakanna í dag. Sérfræðingur Svía segir að nauðsynlegt sé fyrir Íslendinga að hafa skýr markmið og sterka viðveru í Brussel ætli þeir í ESB. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fólks­bíl ekið aftan á trakt­or Fólksbíl var ekið aftan á traktor á Fljótsheiði á fjórða tímanum. Einn var fluttur með sjúkrabíl. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Hornafjörður Nýtt hjúkr­un­ar­heim­ili vígt á Höfn Þegar öllum framkvæmdum verður lokið á Skjólgarði verða hjúkrunarrými orðin 30, þremur fleiri en nú er. Bygging hjúkrunarheimilisins hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Mun elsta heims­met frjáls­íþrótta falla í kvöld? Mikil eftirvænting er fyrir 800 metra hlaupi kvenna á EM í frjálsíþróttum. Elsta heimsmet frjálsíþrótta er í hættu en Werro og Hodgkinson ógna 43 ára meti. Ná þær metinu sem var talið ómögulegt að bæta? Ætti Werro yfir höfuð að vera með í úrslitum? Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vilja óbreytta stýri­vexti – Óásætt­an­leg staða að það sjáist varla til lands Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir aðhald peningastefnu Seðlabankans of mikið og hagkerfið að kólna. Samtökin vilja að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matur Skor­dýr í frosn­um hind­berj­um Grétar Þór Sigurðsson Búið er að innkalla eina framleiðslulotu af þessum hindberjum. Krónan Matvælastofnun varar neytendur við einni lotu af frosnum hindberjum frá Grön Balance vegna skordýra sem mögulega geta leynst í pakkningunum. Krónan, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Mosfellsbæjar, hefur innkallað vöruna af markaði. Matvælastofnun vekur athygli á þessu á heimasíðu sinni. Best fyrir dagsetning á pakkningum hindberjanna er 19.03.2028. Fólk sem hefur keypt þessa framleiðslulotu getur skilað hindberjunum og fengið endurgreitt. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Hátt í 200 ís­lensk­ir þátt­tak­end­ur á varnar­æf­ing­unni Norður-Vík­ing­ur Æfingin er haldin að jafnaði annað hvert ár hér á landi. Til stendur að æfa viðbragð við hefðbundinni hernaðarógn á landi, sjó og í lofti ásamt fjölþáttaógnum og skemmdarverkum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur 8.000 far­þeg­ar fyrir hádegi Um fjórðungi fleiri farþegar fóru um Leifsstöð í morgun en á hefðbundnum föstudegi, en almyrkvaferðamennirnir fara nú einn af öðrum. Langar raðir mynduðust og bandarískur farþegi sagðist búast við langri bið. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Moses og vinir: „Kímni­gáfa Moses og vina er ein þunga­miðja plöt­unn­ar“ Vaka Orradóttir rýnir í plötuna Moses og vinir, nýjustu breiðskífu Moses Hightower sem er plata vikunnar á Rás 2. Hún lýsir plötunni sem bekkjarmóti af bestu gerð og gefur henni fjórar og hálfa stjörnu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Nú má heita Araþon, Húrinn og Herner Mannanafnanefnd hefur kveðið upp tólf úrskurði um mannanöfn á síðustu vikum. Öll nöfnin tólf voru samþykkt. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Lög­regla fann þrjú mál­verk eftir gömlu meist­ar­ana sem stolið var í mars Markús Þ. Þórhallsson Ítalskur lögreglubíll. Mynd úr safni. Pixabay / CC0 Ítölsk lögregluyfirvöld hafa fundið að nýju þrjú málverk eftir Pierre-Auguste Renoir, Paul Cézanne og Henri Matisse sem stolið var í mars úr Magnani Rocca-einkasafninu nærri borginni Parma. Verkin fundust eftir að húsleit var gerð á nokkrum stöðum að skipan ríkissaksóknara. Verkin þrjú eru Fiskur eftir Renoir, Kyrralífsmynd með kirsuberjum eftir Cézanne og Ambátt á stéttinni eftir Matisse. Þau eru samtals talin yfir níu milljóna evra virði, eða jafngildi næstum 1,3 milljarða króna. Svo virðist sem þjófnaðurinn hafi verið þaulskipulagður. Rannsókn stendur enn yfir en lögregla telur skipulögð glæpasamtök hafa staðið að ráninu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Ís­lenskt sam­fé­lag ör­ugg­ara eftir brott­vís­un Sterk­aj Dómsmálaráðherra segir íslenskt samfélag öruggara eftir að morðingjanum Angelin Sterkaj var vísað úr landi. Hann fær aldrei aftur að stíga inn á Schengen-svæðið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Nýja lögnin skemmd­ist við út­lagn­ingu Nýja vatnslögnin til Vestmannaeyja skemmdist við útlagningu hennar. Hvorki Vestmannaeyjabær né verktaki vilja tjá sig um það hvernig hún skemmdist. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Bak­vakt­ir dýra­lækna á Djúpa­vogi og Horna­firði ómann­að­ar frá 16. ágúst Ekki hefur tekist að manna bakvaktir dýralækna á þjónustusvæði 8 frá og með 16. ágúst. Dýraeigendur á svæðinu geta ekki gengið að því vísu að dýralæknir sé á vakt. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Fjórar árásir gerðar dag hvern á heil­brigð­is­stofn­an­ir á stríðs­hrjáð­um svæðum Fjórar árásir hafa að meðaltali verið gerðar daglega á heilbrigðisstofnanir á stríðshrjáðum svæðum heimsins, þar sem heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingar hafa verið drepnir eða særðir. Úkraína, Líbanon og Palestína hafa orðið verst úti. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Þrír skip­að­ir í rann­sókn­ar­nefnd um

Share this article