Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Víkingar endurheimtu átta stiga forskot sitt á toppnum

Read Full Article →

Víkingur Reykjavík endurheimti átta stiga forskot sitt á toppi Bestu deildar karla í fótbolta. KR vann KA 3-5 fyrr í dag og var forskot Víkinga komið niður í fimm stig. Víkingar léku af miklu öryggi í dag og eru með 51 stig eftir 20 leiki. Valur er í 8. sæti með 23 stig þegar tveir leikir eru eftir af deildinni fram að tvískiptingu. Liðið á enn möguleika á að enda í efri hlutanum. Valdimar Þór Ingimundarson kom Víkingum yfir eftir 48 mínútna leik. Karl Friðleifur og Hrannar Snær léku sín á milli upp hægri vænginn. Hrannar fann Valdimar aleinan í miðjum teignum. Árbæingurinn tók snertingu og skoraði af öryggi í hornið. Þetta var hans sjöunda mark í 19 leikjum. Hrannar Snær fékk dauðafæri til að tvöfalda forskotið á 55. mínútu en brást bogalistin. Aðstoðarþjálfarinn Aron Baldvin Þórðarson fékk rautt spjald fyrir munnsöfnuð á 64. mínútu. Helgi Guðjónsson skoraði annað markið á 69. mínútu. Stígur Diljan Þórðarson átti fyrirgjöf frá vinstri á fjærstöng. Hrannar skallaði boltann aftur fyrir og þaðan hrökklaðist boltinn fyrir fætur Helga, sem kom boltanum í netið af stuttu færi.

Share this article