Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Spennan var mikil þegar Werro nældi í gullið

Read Full Article →

Spennan var mikil í 800 metra hlaupi kvenna. Þar voru Audrey Werro, sem á besta tíma aldarinnar, og heimakonan Keely Hodgkinson, ríkjandi Evrópumeistari innanhúss, meðal keppenda. Þá var hin hollenska Femke Boroeders-Bol einnig á brautinni. Heimsmetið í greininni er það elsta í frjálsíþróttum en þær nálgast tímann óðfluga. Það stendur í 1:53,28 mínútum en Audrey Werro varð nýlega þriðja konan í sögunni til að hlaupa undir 1:54 mínútum. Eins og við var að búast voru þær fremstar kvenna í hlaupinu. Það var hin 22 ára gamla Werro sem kom fyrst í mark á nýju meistaramótsmeti, 1:54,81 mínúta. Hodgkinson varð önnur á 1:55,01. Þá setti Broeders-Bol nýtt hollenskt met því hún kom í mark á 1:55,54 mínútum. Það skilaði henni jafnframt bronsinu. Hér má sjá 800 metra hlaupið. Sigurbjörn Árni Arngrímsson lýsir. Keppt var til úrslita í hinum ýmsu greinum á EM í frjálsíþróttum í kvöld. Augu margra beindust að 800 metra hlaupi kvenna þar sem mikil spenna var. Það var hin 22 ára gamla Audrey Werro sem kom fyrst í mark. Stakk af og vann gull Keppt var í úrslitum í 10.000 metra hlaupi kvenna. Þar var það ítalska Nadia Battocletti sem varð langfyrst í mark á 31:41,17 mínútum. Hún stakk fremsta hópinn af þegar um 250 metrar voru eftir og var rúmum fjórum sekúndum á undan Maureen Koster sem tók silfrið. Norskt gull og meistaramótsmet Norðmaðurinn Karsten Warholm gerði svo sérlega vel í úrslitum 400 metra grindahlaups karla því hann sló meistaramótsmetið. Hann kom í mark á 46,63 sekúndum og fer heim með met og gull. Hann var rúmri sekúndu á undan næsta manni. Íslendingar í sviðsljósinu á morgun Á morgun keppa tveir Íslendingar á mótinu. Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í úrslitum í spjótkasti klukkan sjö og Baldvin Þór Magnússon í beinum úrslitum í 10.000 metra hlaupi karla. Það verður bæði í kvöldhluta mótsins og útsending frá honum hefst annað kvöld klukkan 18:40 á RÚV 2.

Share this article