Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mun elsta heimsmet frjálsíþrótta falla í kvöld?

Read Full Article →

Elsta heimsmet frjálsíþrótta gæti fallið í dag í 800 metra hlaupi kvenna. Heimsmet Jarmilu Kratochvílovú frá 1983 og töldu sérfræðingar lengi vel að það myndi jafnvel aldrei falla. Met hennar hefur staðið í 43 ár og 19 daga. En nú gæti það fallið þar sem hlaupahópurinn í úrslitum á Evrópumótinu er einn sá sterkasti í áraraðir. Enginn hafði komist í nálægð við metið í áraraðir. Árið 2008 hljóp Pamela Jelimo á 1:54:01 og sýndi að það væri von. Engin hefur ógnað metinu fyrr en að hin svissneska Audrey Werro sprengdi kapphlaupið upp í loft. Það hefur lengi vel verið skuggi yfir meti Kratocvílovú sökum ásakana um lyfjasvindl. Það hefur hins vegar aldrei fengist staðfest og Tékkinn neitar því harðlega. Hverjar gætu slegið metið? Síðustu ár hefur breska hlaupastirnið Keely Hogdkinson talað um að hún trúi að hún geti slegið þetta forna met. Hún var sú besta í heimi og á besta tíma upp á 1:54,33 sem var settur í ár. En Svisslendingurinn Audrey Werro hefur komið eins og stormsveipur fram á sjónarsviðið í ár. Hún hefur í ár náð þriðja og fjórða besta tíma sögunnar og er að nálgast metið eftirsótta. Werro er 0,52 sekúndum frá heimsmetinu og Hodkingson er 1,05 sekúndum frá því. Werro er 22 ára gömul og rétt að byrja. Hodgkinson er 24 og hefur verið sú besta í heimi síðustu ár. Hún vann til að mynda gull á Ólympíuleikunum í París. Hröðustu tímar sögunnar í 800 metra hlaupi kvenna TÍMI - ÍÞRÓTTAMAÐUR - LAND ÁR 1:53,28 - Jarmila Kratochvílová - Tékkland - 1983 1:53,43 - Nadezhda Olizarenko - Úkraína - 1980 1:53,80 - Audrey Werro - Sviss - 2026 1:53,98 - Audrey Werro - Sviss - 2026 1:54,01 - Pamela Jelimo - Kenía - 2008 1:54,25 - Caster Semenya - Suður-Afríka - 2018 1:54,33 - Keely Hodgkinson - Bretland - 2026 Skakkaföll í undanrásum Werro fékk reyndar hálfgerðan frípassa í úrslitin þar sem að hún féll og hefði ekki náð inn á tíma. Hún kláraði hins vegar hlaupið og eftir á breyttu dómararnir lokahóp kvenna úr 8 yfir í 10 keppendur. Werro og litháíski hlauparinn Gabija Galvydyte fengu þátttökurétt í úrslitum en þær komu inn á rétt yfir tveimur mínútum. Frakkinn Bourgoin hafði snert Werro þegar hún var fremst í undanúrslitum. Ef Werro hefði ekki klárað hlaupið hefði hún ekki getað komist inn í úrslitin á þessari undanþágu. Fall Werro kom þegar um 150 metrar voru eftir af hlaupinu. Femke Bol er með Hin ótrúlega Femke Bol hefur unnið allt sem hægt er að vinna í 400 metra grindarhlaupi en sú hollenska hefur nú snúið athygli sinni að 800 metrunum. Hodkingson var hins vegar ekki í vandræðum með að skilja Bol eftir í undanúrslitum. Sú breska kom fyrst í mark á tímanum 1:57,38. Bol var á 1:57,46. Besti tími Bol í ár er 1:55,60. Werro fór á 1:53,98 á Demantamótaröðinni í Stokkhólmi í júní í ár. Hodkingson hljóp á sínum besta tíma í sama hlaupi, 1:54,33. Warro bætti svo um betur á Demantamótaröðinni í París er hún fór á 1:53,80. Mun taktíkin taka yfir? Hodgkinson er ríkjandi Evrópumeistari og mun auðvitað gera allt sem í hennar valdi stendur til að standa uppi sem sigurvegari á heimavelli. Það gæti farið svo að hlaupið muni ráðast fremur af taktík en hreinum hraða. Úrslit í 800 metra hlaupi á stórmótum eiga það til að vera hægara heldur en til dæmis á Demantamótaröðinni. Keppnin verður æsispennandi sama hvað. Hlaupið er síðasta keppnin á dagskrá í kvöld. Sýnt verður frá mótinu á RÚV 2 í kvöld. Kvöldhluti EM í frjálsum 18:35 - Kúluvarp (sjöþraut kvenna) 18:45 - 10.000 m hlaup kvenna, úrslit 19:00 - Hástökk karla, úrslit 19:30 - Kringlukast kvenna, úrslit 19:40 - 400 m grindahlaup karla, úrslit 19:55 - 200 m hlaup (sjöþraut kvenna) 20:25 - 200 m hlaup karla, úrslit 20:46 - 800 m hlaup kvenna, úrslit

Share this article