Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Úr ólíkum áttum: Almyrkvi umræðunnar

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 15.8.2026 | 7:00 Úr ólíkum áttum: Almyrkvi umræðunnar Árni Helgason Setja bókamerki Pistill Árna Helgasonar úr Sunnudagsblaðinu Allt frá því að oddvitar ríkisstjórnarinnar kynntu í byrjun mars að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið hefur fátt annað komist að. Það er að mörgu leyti skiljanlegt, málið er stórt og veigamikið og þótt reynt sé að stilla þessu upp sem saklausum könnunarleiðangri átta flestir sig á alvöru og stærðargráðu málsins. En á meðan samfélagsmiðlar eru teppalagðir af ESB-deilum og vinir geta varla hist lengur er margt annað sem kemst ekki að. Eitt af því eru efnahagsmálin, sem eru einmitt það mál sem ríkisstjórnin var kosin til að leysa. Að hluta til kann skýringin á þessari þögn að vera sú að það hefur verið lítið að ræða um, ríkisstjórninni hefur ekkert orðið ágengt og nánast allar tölur hafa þróast til verri vegar. Verðbólga er meiri nú en þegar ríkisstjórnin tók við, vextir eru á uppleið og atvinnuleysi hefur aukist. Horfurnar eru ekki góðar og óvíst hvort kjarasamningar haldi. Staðan er því víðsfjarri þeim hástemmdu loforðum sem gefin voru fyrir síðustu kosningar eða þeim árangri sem ríkisstjórnin státaði sig af til að byrja með. Þannig sagði forsætisráðherra í síðasta nýársávarpi sínu að meðalfjölskyldan nyti vaxtalækkana sem næmu um 60 þúsund krónum á mánuði vegna árangurs ríkisstjórnarinnar. Nú þegar vextir hafa hækkað á ný hafa fjölskyldur landsins einhverra hluta vegna ekki verið upplýstar um hvað efnahagslegt árangursleysi ríkisstjórnarinnar kosti þær mánaðarlega. Þess í stað birta stjórnarliðar og fylgihnettir þeirra reglulega samanburð á íslenskum vöxtum og evrópskum, enda virðist ESB-aðild nú vera eina færa leiðin til að ráða bót á efnahagsvanda þjóðarinnar. Núna um mánaðamótin fellur úr gildi helsta efnahagsaðgerð ríkisstjórnarinnar, tímabundin fjögurra mánaða lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti. Að óbreyttu mun þetta valda hækkun á eldsneytisverði og þar með aukinni verðbólgu. Þetta er eftir öðru. Í stað þess að sýna aðhald í rekstri ríkisins voru ríkisútgjöld stóraukin í fyrstu fjárlögum ríkisstjórnarinnar og stór hluti þeirra auk þess settur á sjálfstýringu með lögfestingu á tvöföldum lás til hækkunar bóta. Gjaldskrár- og skattahækkanir ríkisstjórnarinnar um áramótin juku svo beinlínis á verðbólguvandann. Í raun virkar ríkisstjórnin ráðalaus og virðist hafa fátt annað að bjóða en margra ára aðildarferli að ESB sem hún er þó ekki einhuga um. En jafnvel þótt þjóðin veiti samþykki fyrir slíkum leiðangri, sem ég held og vona að hún geri ekki, þá mun það ekki breyta stöðunni í náinni framtíð. Það þarf að takast á við vandann hér heima núna strax en ekki eyða kröftunum í karp um Evrópusambandið. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kirkja afhelguð og fer í fóstur Veður með rólegasta móti um helgina Úr ólíkum áttum: Almyrkvi umræðunnar Handboltabakterían dreifði sér Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit Samúel hótað Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Reynir aftur við fljótið um helgina Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi Samúel hótað Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Kirkja afhelguð og fer í fóstur Veður með rólegasta móti um helgina Úr ólíkum áttum: Almyrkvi umræðunnar Handboltabakterían dreifði sér Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki betur borgið innan ESB Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið Aðgerðir ESB rími ekki við þarfir íslenskra bænda Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Reynir aftur við fljótið um helgina Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi Samúel hótað Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna

Share this article