Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Pistill: Maran og svikin

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.9.2026 | 8:00 Pistill: Maran og svikin Árni Helgason Setja bókamerki Úr ólíkum áttum Pistill Árna Helgasonar úr Sunnudagsblaðinu Eitt af því sem nefnt hefur verið, nú þegar niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni liggur fyrir, er að þjóðin hafi loksins útkljáð mál sem hafi legið á henni eins og „mara“ árum saman. Þessu fylgir gjarnan að loforð hafi verið svikin. Þar er vísað til þess að í aðdraganda kosninga 2013 var talað um að halda skyldi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda ætti áfram aðildarviðræðum. Þótt það sé út af fyrir sig svolítið óvenjulegt að rifja upp þrettán ára gömul loforð annarra stjórnmálaflokka þá er ekki síður fróðlegt að rifja aðeins upp söguna og samhengi málsins. Þáverandi ríkisstjórn sótti um aðild að Evrópusambandinu sumarið 2009. Þegar viðræðurnar stöðvuðust árið 2013 voru þær skammt á veg komnar. Málið var ekki ofarlega á dagskrá fyrir kosningarnar það ár og umræðan var fremur á tæknilegum nótum, hvað ætti að verða um aðildarferlið frekar en að flokkar væru mjög áfram um ESB-aðild. Eftir kosningar mynduðu Sjálfstæðisflokkur og Framsókn ríkisstjórn og tóku þá umdeildu en skiljanlegu ákvörðun að fara ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna, þar sem hvorugur flokkurinn hafði aðild að Evrópusambandinu á sinni stefnuskrá. Að baki bjó sú hugsun að ríkisstjórn fer ekki í aðildarviðræður nema hún stefni að aðild og sannarlega ekki ef hún er beinlínis andsnúin aðild. Eflaust voru einhverjir ósáttir. Slíkir kjósendur höfðu ýmsa valkosti, gátu t.d. sagt sig úr viðkomandi flokki eða beint atkvæðum sínum í aðra átt í næstu kosningum sem fóru fram árið 2016. Ef málið hefði legið þungt á þjóðinni má ætla að þetta hefði orðið flokkunum dýrkeypt. En svo var þó ekki. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 29% fylgi í kosningunum 2016 og bætti verulega við sig. Samfylkingin, sem hafði lengst af talað fyrir Evrópusambandsaðild, galt afhroð og fékk tæplega 6% fylgi en Viðreisn, sem bauð í fyrsta sinn fram í þessum kosningum, fékk 11% fylgi. Það sem meira er, þá endaði Viðreisn á að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Bjartri framtíð að loknum kosningum. Ef hið svikna loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu frá síðustu kosningum var svona stórt mál hlýtur það að hafa verið forsenda fyrir ríkisstjórnarsamstarfi að málið færi á dagskrá. En svo var ekki. Í stjórnarsáttmála var ekki kveðið á um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður. Sú ríkisstjórn varð reyndar skammlíf og sprakk um ári síðar. Árið 2017 var kosið á ný og aftu r fengu Evrópumálin litla athygli. Sömu sögu má segja af kosningunum 2021. Það var svo ekki fyrr en í ár að boðað var til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Raunveruleikinn er sá að mjög afmörkuðum hópi hefur þótt málið knýjandi. Öðrum ekki. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hellisheiði lokuð vegna slyss Pistill: Maran og svikin Gamla ljósmyndin: Bikarmeistarar 1979 Ná kverkataki á siglingum um Rauðahaf Slydda til fjalla Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verða að koma böndum á gervigreindina Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Kourani afplánaði þriðjung dómsins Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Algjörlega óviðunandi staða „Þurfum öll að vera vör um okkur“ Stjórn SÁÁ bregst við vantraustsyfirlýsingu „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nýjast á mbl.is » Hellisheiði lokuð vegna slyss Pistill: Maran og svikin Gamla ljósmyndin: Bikarmeistarar 1979 Ná kverkataki á siglingum um Rauðahaf Slydda til fjalla Umræðan Mætti prófa að tala saman – og við börnin? Til hvers er unnið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldisleyfi í höfn þrátt fyrir fordæmalausa andstöðu Trump: „Þess vegna berjumst við í dag“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Mest lesið Í gær Í vikunni Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Algjörlega óviðunandi staða „Þurfum öll að vera vör um okkur“ Stjórn SÁÁ bregst við vantraustsyfirlýsingu „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Ríkið stillir af leikreglur en er eigandi „Án mannauðs erum við ekki neitt“ Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Minningarstund um Hönnuh Jane Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ „Umrædd fyrirmæli voru mistök“ „Við höfum gengið eins langt og við getum“ Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ

Share this article