Viðskipti | mbl | 20.5.2026 | 10:57 Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fór yfir stöðu mála með þeim Þórarni G. Péturssyni varaseðlabankastjóra peningastefnu og Karen Áslaugar Vignisdóttur, aðalhagfræðingi bankans og framkvæmdastjóra sviðs hagfræði og peningastefnu. mbl.is/Hákon Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna 25 punktar muni merja sigurinn á morgun » Fleiri tengdar fréttir Ástæða þess að peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að hækka stýrivexti bankans ekki um meira en 0,25 prósentur eru meðal annars þær að seinasta hækkun upp á sömu prósentu skilaði góðum árangri auk þess sem horfur eru á að verðbólga hjaðni nú í sumar. Þetta sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á upplýsingafundi peningastefnunefndar Seðlabankans fyrr í dag. Var Ásgeir þar spurður út í það hvers vegna sú ákvörðun hafi verið tekin að hækka vexti bankans ekki meira. Allir nefndarmennirnir fimm voru sammála um að hækka vexti um 0,25 prósentustig. Frétt af mbl.is Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna Spjótin beinast að Mið-Austurlöndum Sagði Ásgeir einnig möguleika á því að samið verði um frið í Mið-Austurlöndum spila inn í það að ekki var tekið stærra skref í taumhaldi bankans. Þá myndi væntanlega vera opnað fyrir umferð um Hormússund að nýju, sem myndi að líkindum leiða til hjöðnunar verðbólgu. „Það er líka alveg möguleiki að lokun á Hormússundi hafi ekki línuleg áhrif á olíuverð og hagvöxt í heiminum, heldur bara ólínuleg áhrif, það er að segja að olían bara klárist og við sjáum samdrátt hjá öðrum löndum. Það er möguleiki að við séum að sjá dekkri hagvaxtarhorfur í heiminum,“ sagði Ásgeir á fundinum. Frétt af mbl.is „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ „Þá verðum við að bregðast við“ Stýrivextir voru einnig hækkaðir um 0,25 prósentustig í mars en sú hækkun skilaði að sögn Ásgeirs tilætluðum árangri. „Ef þú horfir á fasta langtímavexti þá sjáið þið að allt vaxtarófið hefur hliðrast upp og vaxtaaðhald hefur aukist. Markmið síðustu vaxtahækkunar gekk eftir og meira en það. Mögulega erum við á þeim stað að við þurfum ekki að hækka um 50 punkta, getum hækkað um 25 og haft áhrif á allt rófið. Við kjósum að túlka það þannig að það sé merki um aukinn trúverðugleika.“ Segir Ásgeir það þá einnig spila inn í ákvörðunina að þrátt fyrir að bankinn spái því að verðbólga komi til með að aukast með haustinu þá muni verðbólgan hjaðna í sumar, sem skili sér í hærra raunvaxtastigi. „Við erum þó auðvitað tilbúin að gera eitthvað meira, sérstaklega ef hlutir fara að ganga til verri vegar á vinnumarkaði. Þá verðum við að bregðast við.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna 25 punktar muni merja sigurinn á morgun » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Sigurður Már Jónsson Vélin eða velferðarkerfið Fleira áhugavert Mikilli niðursveiflu virðist lokið ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Fá 470 milljarða í júní Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Jónína Guðný nýr forstöðumaður Advania og Keystrike í samstarf Arnaldur skipaður nýr formaður Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Var skárri en ekkert fyrir neytendur Þórir og Ómar til Vettvangs Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Advania og Keystrike í samstarf Arnaldur skipaður nýr formaður Þórir og Ómar til Vettvangs Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Var skárri en ekkert fyrir neytendur Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Daníel verður forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Var skárri en ekkert fyrir neytendur Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Arnaldur skipaður nýr formaður Munu ekki sameinast Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Pistlar » Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Sigurður Már Jónsson Vélin eða velferðarkerfið Fleira áhugavert Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Jónína Guðný nýr forstöðumaður Advania og Keystrike í samstarf Arnaldur skipaður nýr formaður Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Var skárri en ekkert fyrir neytendur Þórir og Ómar til Vettvangs Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Advania og Keystrike í samstarf Arnaldur skipaður nýr formaður Þórir og Ómar til Vettvangs Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Var skárri en ekkert fyrir neytendur Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Daníel verður forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Var skárri en ekkert fyrir neytendur Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Arnaldur skipaður nýr formaður Munu ekki sameinast Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig