Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslenska sundfólkið lauk einstaklingskeppni í morgun

Read Full Article →

Íslenskt sundfólk lauk í morgun keppni í einstaklingsgreinum á Evrópumótinu í París en ein íslensk sveit tekur þátt í boðsundi á morgun. Símon Elías Statkevicius var fyrstur Íslendinga í laugina í morgun þegar hann keppti í 50 metra skriðsundi. Hann endaði í 57. sæti þegar hann synti á 22,81 sekúndu sem er hans næstbesti tími í greininni. Hér má sjá sund Símons og viðtal við hann: Fjórir Íslendingar kepptu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Íslenskir keppendur hafa þá lokið keppni í einstaklingsgreinum en á morgun syndir íslenska karla sveitin í 4x100 metra fjórsundi. Guðmundur Leo Rafnsson synti einnig á sínum næstbesta tíma í 100 metra baksundi eða 56,13 sekúndum. Það skilaði honum 51. sætinu. Hér má sjá sund Guðmundar og viðtal við hann: Fjórir Íslendingar kepptu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Íslenskir keppendur hafa þá lokið keppni í einstaklingsgreinum en á morgun syndir íslenska karla sveitin í 4x100 metra fjórsundi. Birgitta Ingólfsdóttir var síðust sundkvenna í laugina á mótinu en hún tók þátt í undanrásum í 50 metra bringusundi. Hún kom í bakkann á 32,74 sekúndum og endaði í 38. sæti. Hér má sjá sund Birgittu og viðtal við hana: Fjórir Íslendingar kepptu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Íslenskir keppendur hafa þá lokið keppni í einstaklingsgreinum en á morgun syndir íslenska karla sveitin í 4x100 metra fjórsundi. Birnir Freyr Hálfdánarson var svo síðastur allra Íslendinga að keppa í einstaklingssundi þegar hann synti 200 metra fjórsund. Tíminn var 2:05,18 og 44. sætið niðurstaðan. Hér má sjá sund Birnis og viðtal við hann: Fjórir Íslendingar kepptu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Íslenskir keppendur hafa þá lokið keppni í einstaklingsgreinum en á morgun syndir íslenska karla sveitin í 4x100 metra fjórsundi. Íslenska boðsundssveit karla keppir í 4x100 metra fjórsundi í fyrramálið. Bein útsending hefst klukkan 07:25. Hægt er að horfa á hana í RÚV-appinu eða á rúv.is.

Share this article