Evrópumótið í sundi hófst í París í morgun. Tíu Íslendingar keppa á mótinu og átta af þeim kepptu í sínum fyrstu greinum strax á fyrsta keppnisdegi. 400 m fjórsund karla Hómar Grétarsson keppti í fyrstu grein mótsins eða í undanrásum í 400 m fjórsundi karla. Hann synti á 4:29,65 sem skilaði honum í 23. sæti en einungis átta sundmenn komust áfram í úrslit. 100 m skriðsund kvenna Þrjár sundkonur syntu í undanrásum í 100 m skriðsundi kvenna. Af þeim synti Snæfríður Sól Jórunnardóttir hraðast eða á 55,72 sekúndum og endaði í 35. sæti en 16 komust áfram í undanúrslit. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir endaði í 46. sæti og Vala Dís Cicero sæti neðar. Jóhanna Elín synti á 56,79 sekúndum, Vala Dís var á 56,95 sekúndum. 50 m flugsund karla Þeir Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius enduðu í 68. og 69. sæti í 50 m flugsundi karla. 16 hröðustu komust í undanúrslit. Birnir Freyr var á 24,60 sekúndum, Símon Elías synti á 24,70. 100 m bringusund karla Einar Margeir varð 33. í 100 m bringusundi karla á tímanum 1:00,87 sem er bæting á hans besta tíma um 36 sekúndubrot. Snorri Dagur Einarsson synti á 1:02,20 og varð í 52. sæti. 16 komust í undanúrslit. Sundið heldur áfram í kvöld Bein útsending frá kvöldhlutanum hefst 16:25 á RÚV þar sem keppt verður í undanúrslitum og úrslitum, meðal annars í greinunum sem talað er um hér að ofan: 50 m flugsund karla, undanúrslit 100 m skriðsund kvenna, undanúrslit 400 m fjórsund karla, úrslit 200 m baksund kvenna, undanúrslit 100 m bringusund karla, undanúrslit 4x200 m skriðsund kvenna, úrslit 4x200 m skriðsund karla, úrslit Í fyrramálið keppa svo Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Birgitta Ingóldsdóttir og Guðmundur Leo Rafnsson í undanrásum og hefst útsending 07:30.