Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall Ragnhildur Helgadóttir Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði. Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að hífa manninn um borð. Hann verður þá fluttur til Reykjavíkur. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta við fréttastofu. Upplýsingar um líðan mannsins eru ekki fyrir hendi. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 3 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelar gera loftárásir í Líbanon Ellefu voru drepnir og þrír særðust í loftárás Ísraela á suður Líbanon. Þetta er mesta mannfall í Líbanon síðan Ísraelar og Hezbollah samþykktu vopnahlé í júní. Fyrir 36 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday Forsætisráðherra Bretlands biðlar til landsmanna að taka sér andartak til íhugunar eftir að Jason Arday, prófessor við Cambridge-háskóla fannst látinn. Mikið fjölmiðlafár var skömmu fyrir dauða Ardays eftir að hann var sakaður um ritstuld. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Segir varanlegar undanþágur í boði: „Það heitir sérlausnir“ „Þær eru í boði, aðrar þjóðir hafa fengið slíkt,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra um varanlegar undanþágur frá reglum Evrópusambandins. Hún var gestur í Vikulokunum á Rás 1 í morgun. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Rangárþing ytra Hæfileikakeppni gæludýra á Hellu Það iðar alltaf af lífi og fjöri á Hellu og næsta nágrenni um helgina þar sem Töðugjöld Rangárþings ytra fara fram. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Lögnin komin á land en ekki ljóst hvort hún beri vatn Ný vatnslögn til Vestmannaeyja kom í land klukkan rúmlega sex í morgun í Skansfjöru og liggur í skurði sem gerður var fyrir lögnina. Bæjarstjóri segir tvær vikur tíma þangað til hægt verði að sannreyna hvort hún geti flutt vatn eða ekki. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Tvö heimsmet féllu í kappgöngu Tvö heimsmet féllu í kappgöngu kvenna á EM í frjálsíþróttum í morgun. María Pérez frá Spáni og hin ítalska Sofia Fiorini bættu heimsmetin í hálfmaraþoni og maraþoni. Tveir Íslendingar keppa í úrslitum á EM í kvöld. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Aftur langar biðraðir á Keflavíkurflugvelli í dag Langar raðir hafa myndast fyrir utan flugstöð Leifs Eiríkssonar í dag. Upplýsingafulltrúi Isavia segir biðtíma að hámarki 45 mínútur. Ástæðan sé aukin umferð ferðamanna í kringum sólmyrkvann. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Ákvörðun menntamálaráðherra að breyta einkunnagjöf í grunnskólum skömmu fyrir upphaf skólaárs er eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þetta segir formaður Félags grunnskólakennara. Þá hafi ekkert samráð verið haft við kennara. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Sextán ára drengur lést í busavígslu í Danmörku Sextán ára drengur lést eftir að hafa verið stunginn með hnífi í árlegri busavígslu í dönsku borginni Hróarskeldu í gærkvöldi. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Sund Íslenska sundfólkið lauk einstaklingskeppni í morgun Fjórir Íslendingar kepptu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Íslenskir keppendur hafa þá lokið keppni í einstaklingsgreinum en á morgun syndir íslenska karla sveitin í 4x100 metra fjórsundi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaforseti gerir lítið úr áhyggjum aðstandenda hermanna Donald Trump Bandaríkjaforseti gefur lítið fyrir áhyggjur aðstandenda hermanna sem eru um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indónesía Hátt í fjörutíu látin eftir öflugan jarðskjálfta í Indónesíu Hátt í fjörutíu eru látin eftir að jarðskjálfti, 7,7 að stærð, varð í Indónesíu í gærkvöld. Byggingar urðu fyrir skemmdum og þúsundir hafa yfirgefið heimili sín. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Svona hefur staða Færeyja breyst með nýrri heimskipan Danir vilja auka viðveru hers í Færeyjum. Varnarmálaráðherra Danmerkur vildi gera samkomulag um það – sem reyndist aðeins flóknara en ætla mætti. Færeyingar horfast eins og fleiri í augu við breytta heimsmynd. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hveragerðisbær Bjór- og kæfuís í boði fyrir forvitna Stóri ísdagurinn er í dag, í tengslum við bæjarhátíðina Blómstrandi daga í Hveragerði um helgina. Alls konar ís verður í boði á Kjörísplaninu frá klukkan 11–13:30. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Telur óskynsamlegt af hálfu bænda að leggjast gegn aðildarviðræðum Atvinnuvegaráðherra telur það ekki skynsamlegt að bændur leggist gegn því að aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist að nýju. Mikilvægt sé að hagsmunasamtök komi að mögulegum aðildarviðræðum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Afganistan Ótti afganskra kvenna hefur tekið á sig nýja mynd Fimm ár eru síðan Talibanar komust aftur til valda í Afganistan. Á þeim tíma hefur staða kvenna versnað til muna, samkvæmt nýrri skýrslu UN Women. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ökumenn í spyrnu á 190 kílómetra hraða Ökumenn voru teknir í spyrnu á um 190 kílómetra hraða og lögregla leitaði að manni með rafbyssu í miðbænum. Nokkur erill var hjá lögreglu á lögreglustöð 1 í nótt sem veitir aðstoð í miðbæ, Austurbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Þetta var epík, ég á ekki orð enn í dag“ Aldís Lilja og Einar Valur játuðust hvort öðru í fjörunni á Álftanesi meðan almyrkvinn var. Aldís segir það hafa verið afar töfrandi stund og að meira að segja fuglarnir hafi þagnað. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rólegt veður víðast hvar um helgina Ragnar Jón Hrólfsson Útlit er fyrir rólegt veður um helgina. Búast má við hægri breytilegri vindátt eða hafgolu á landinu. Víðast hvar verður þurrt og bjart með köflum en skýjað sunnanlands. Þar má einnig búast við vægum skúrum, sérstaklega síðdegis. Möguleiki er á þokubökkum við norður- og austurströnd landsins. Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 17 stig. Hlýjast á Vesturlandi. Á mánudaginn bætir aðeins í vind nærri suðurströnd landsins og þá má búast við smávegis vætu af og til á þeim parti landsins. Hiti fer þá upp í allt að 18 til 19 stig þegar best lætur. Frá Mývatni. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Í dag: Fimleikar, sund og Sindri og Baldvin í úrslitum Evrópumótin í frjálsíþróttum og sundi halda áfram af fullum krafti í dag og RÚV sýnir beint. Auk þess verður sýnt beint frá úrslitum á einstökum áhöldum kvenna á Evrópumótinu í áhaldafimleikum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Fréttirnar í viðtalinu við ríkasta mann Íslands Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir steig fram í viðtali í júlí og sagðist vera að flytja frá London til Ítalíu vegna breytinga á skattkerfinu þar. Í viðtalinu voru hins vegar fleiri fréttir, meðal annars um lokun Novator í London. 15. ágúst 2026 kl. 6:07ERLENDAR FRÉTTIR Belgía Fundu gull múrað inn í vegg í kjallara hjálparsamtaka Byggingaverkamenn í Belgíu fundu gullstangir og gullpeninga í kistu sem múruð var inn í vegg húss sem þeir voru að vinna í fyrir hjálparsamtök. Gullið er metið á níu milljónir evra og óvíst hver eigandi þess er lagalega séð. 15. ágúst 2026 kl. 6:00ÍÞRÓTTIR Frjálsar Hversu mikið fær Duplantis fyrir hvert heimsmet? Mondo Duplantis er langbesti stangarstökkvari sögunnar en hann lætur það duga að bæta heimsmetið sentímeter fyrir sentímeter. Það er í raun enginn hvati fyrir hann til að sýna hvers hann er í raun og veru megnugur. En hvað fær hann í hvert sinn? 15. ágúst 2026 kl. 5:29ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin 1.100 Sómalar missa vernd í Bandaríkjunum Brynja Dögg Friðriksdóttir Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur samþykkt að aflétta sérstakri vernd fyrir um ellefu hundruð Sómala í Bandaríkjunum. Bandaríkjastjórn fór fram á að verndinni yrði aflétt. Þar með er hægt að vísa fólkinu úr landi. Norska ríkisútvarpið greinir frá því að Sómalar hafi notið verndar í Bandaríkjunum síðan 1991 vegna borgarastyrjaldar í Sómalíu. Bandarísk stjórnvöld halda því fram að aðstæður í landinu séu orðnar nógu góðar til að hægt sé að senda þá til baka. 15. ágúst 2026 kl. 3:28ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaforseti hótar því að gera Hormússund að bandarísku yfirráðasvæði Bandaríkjaforseti sagði í gær að þegar Bandaríkin hefðu sigrað Írana ætlaði hann að lýsa því fljótlega yfir að Hormússund væri yfirráðasvæði Bandaríkjanna. Hann lét þessi ummæli falla á fundi í lögregluskóla á Long Island. 15. ágúst 2026 kl. 2:29ERLENDAR FRÉTTIR Króatía Kona lést í skógareldum Brynja Dögg Friðriksdóttir Fólk horfir á eldhafið nærri Omiš í Króatíu í gær. AP / Tom Dubravec Ein kona fannst látin í bænum Lokva Rogoznica, um 30 kílómetra suður af borginni Split, í Króatíu í gær. Miklir skógareldar hafa geisað í Lokva Rogoznica og Omiš sem er þar nærri. Um 2.000 hafa yfirgefið heimili sín vegna eldanna. The Guardian segir að 42 hafi slasast í skógareldunum, þar af séu sjö í lífshættu. Fjöldi bíla og heimila eyðilögðust og sumar byggingar eru gjöreyðilagðar. Lokva Rogoznica er mjög þéttbýlt bæjarfélag með um 15.000 íbúa en auk þeirra voru um 12.000 ferðamenn á svæðinu þegar eldarnir kviknuðu. Skógareldarnir eru einhverjir þeir verstu í sögu Króatíu. 15. ágúst 2026 kl. 0:16ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela 131 pólitískum fanga sleppt úr fangelsi Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að frelsun fanganna sé mikilvægt skref í átt til sátta í Venesúela. Enn eru tæplega 400 pólitískir fangar í fangelsum landsins. 14. ágúst 2026 kl. 22:55INNLENDAR FRÉTTIR Hveragerðisbær 130 hermenn voru í Hveragerði á stríðsárunum Íbúar í Hveragerði vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar þeir sáu sex kanadíska hermenn í fullum skrúða í bæjarfélaginu. 14. ágúst 2026 kl. 22:33ERLENDAR FRÉTTIR Indónesía Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 við Indónesíu Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð norður af Flores-eyju í Indónesíu í kvöld. Tutt