Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sannleikanum snúið á hvolf

Read Full Article →

Ekkert lát virðist á stórleik Margrétar Rósar Sigur­jóns­dóttur, varaborgarfulltrúa Viðreisnar og eins helsta talsmanns hreyfingarinnar Sjá, sem berst fyrir því að gengið verði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Eftirminnilegt er þegar hún hélt því ranglega fram í myndskeiði á vegum hreyfingarinnar að mjólkurlítrinn kostaði 380 ­krónur hér á landi. Eftir að bent var á rangfærsluna var myndskeiðinu eytt út af miðlum hreyfingarinnar. Á dögunum steig Margrét svo fram með aðra rangfærslu í myndskeiði á vegum Sjá-hreyfingarinnar þegar hún sagði sænsku krónuna tengda evrunni. Hið rétta er að sænska krónan er, rétt eins og sú íslenska, með fljótandi gengi. Eftir að birtar voru fréttir þar sem þetta var leiðrétt var myndskeiðinu þó ekki eytt og brást Margrét Rós við með því að segja að sænska krónan væri vissulega ekki ­bundin evru en hún tengdist evrunni að því leyti að viðskipti væru mikil milli evrusvæðisins og Svíþjóðar. Týr man í fljótu bragði ekki eftir ­mikið aumara yfirklóri, enda má með sömu rökum halda því fram að íslenska krónan sé einnig tengd evrunni. *** Læknirinn Kristín Lilja Eyglóardóttir, sem búsett er í Svíþjóð, sá sig knúna til að stíga fram og svara upplýsingaóreiðu Margrétar og Sjá-­hreyfingarinnar. Í fyrrgreindu myndskeiði sagði Margrét m.a. að þar sem sænsk húsnæðislán bæru mun lægri vexti ætti fólk meiri afgang um hver mánaðamót eða gæti ­valið að vinna minna. Í stuttu máli benti Kristín á þá augljósu staðreynd að laun í Svíþjóð og öðrum ríkjum Evrópusambandsins væru lægri en á Íslandi. Það væri því lítið svigrúm fyrir hinn almenna borgara að minnka við sig vinnu eða að eyða peningunum í annað en afborganir af húsnæðisláni. *** Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á munum í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágúst. Engum dylst um hve mikilvægt mál fyrir framtíð þjóðarinnar er að ræða. Týr hvetur því Sjá-hreyfinguna til að vanda sig betur og gæta þess að áróðursmyndskeið á hennar vegum innihaldi ekki rangfærslur, það er vilji hún láta taka sig alvarlega í umræðunni. Augljóst fyrsta skref er að finna annan talsmann til að leysa Margréti af hólmi. Týr er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article