Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Frækinn sigur tryggði Óliver þátttökurétt á lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska

Read Full Article →

Óliver Elí Björnsson, landsliðskylfingur úr Golfklúbbnum Keili, sigraði í dag á Opna breska áhugamannamóti pilta, The R&A Boys’ Amateur Championship í Skotlandi. Með sigrinum öðlast Óliver þátttökurétt á Opna breska áhugamannamótinu og á lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið, The Open, á næsta ári. Sigurinn mun einnig skila honum stóru stökki á heimslista áhugamanna þegar nýr listi verður birtur á miðvikudag. Í tilkynningu frá Golfsambandi Íslands segir að þetta sé besti árangur íslensks kylfings 18 ára eða yngri frá upphafi. Í hópi með heimsþekktum kylfingum Óliver hafði betur gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu úrslitaleik á Gailes Links golfvellinum. Hann hóf mótið í 36 holu höggleik þar sem keppt var um 64 sæti í holukeppninni. Hann lagði svo hvern andstæðing sinn á fætur öðrum frá 64 manna úrslitum og upp úr. The Boys’ Amateur Championship er eitt sterkasta unglingamót Evrópu og eitt elsta golfmót heims, en það var nú haldið í 106. sinn. Á meðal fyrrverandi sigurvegara eru stórstjörnur á borð við José María Olazábal, Sergio García og Matthew Fitzpatrick.

Share this article