Óliver Elí Björnsson vann um miðjan ágúst Opna breska áhugamannamótið í golfi í piltaflokki, sem var stórt afrek fyrir íslenskan kylfing. Með því vann hann sér jafnframt þátttökurétt á lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið í fullorðinsflokki næsta sumar. Óliver átti þó alls ekki von á því að vinna mótið eftir brösuga byrjun. „Tilfinningin var ekki beint góð fyrir þetta mót því ég var hvorki að sveifla né pútta vel. Fyrsta hringinn spilaði ég illa en svo sagði ég við pabba minn að ég ætlaði núna að vera eins ákveðinn og ég gæti. Þá náði ég að spila mjög gott golf í framhaldinu,“ sagði Óliver Elí við RÚV á æfingasvæði Keilis í Hafnarfirði í gær. Hann var þá nýkominn til landsins eftir að hafa spilað með úrvalsliði pilta frá meginlandi Evrópu á móti úrvalsliði Bretlandseyja á Írlandi um helgina. Kylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Keili segir rosalegt að vita til þess að hann sé á lista með mörgum af bestu kylfingum heims, yfir þá sem unnið hafa Opna breska áhugamannamótið í piltaflokki. Hann stefnir hátt. En hvernig var tilfinningin að vinna mótið? „Það tók mig smá tíma að átta mig á þessu. Ég var ekki alveg að trúa þessu, en svo var ég auðvitað alveg rosalega glaður.“ Í flokki með stórstjörnum Þó Óliver hafi unnið mót í unglingaflokki er afrekið stórt og til að setja það í samhengi hafa þekktir kylfingar á borð við José María Olazábal, Sergio García og Matthew Fitzpatrick áður unnið Opna breska áhugmannamótið í piltaflokki. Óliver raðar sér því á lista með stórstjörnum. „Það er rosalegt að vita að ég sé nefndur í sömu andrá og kylfingar sem eru meðal þeirra bestu í heimi núna. Það segir mér líka að ég sé að stíga nógu stór skref núna inn í evrópska unglingagolfið,“ segir Óliver Elí sem verður 17 ára í september og er á öðru ári í Menntaskólanum í Kópavogi. En hversu hátt stefnir hann í golfinu í framtíðinni? „Að komast í atvinnumennsku er klárlega stóra markmiðið,“ segir Óliver sem hefur þó sett stefnuna fyrst á háskólanám í Bandaríkjunum og stunda þá golfið á skólastyrk. Þar segir hann kylfinga á borð við Gunnlaug Árna Sveinsson og Dagbjart Sigurbrandsson vera miklar fyrirmyndir fyrir sig í augnablikinu.