Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Blikar á toppinn í Bestu deild kvenna

Read Full Article →

Breiðablik náði toppsætinu í Bestu deild kvenna í fótbolta með 3-0 sigri á FH toppslag deildarinnar. FH var fyrir leikinn í toppsætinu á markatölu með jafnmörg stig og Blikar. Breiðablik er komið á toppinn.RÚV / Mummi Lú Edith Krisín Krisjánsdóttir kom Breiðabliki yfir á níundu mínútu. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir tvöfaldaði forystuna á 42. mínútu og 0-2 stóð í hálfleik. Á 72. mínútu tók Agla María Albertsdóttir aukaspyrnu. Fyrirgjöf hennar skoppaði í gegnum pakkann og endaði í markinu. Breiðablik er nú með 36 stig á toppnum, þremur stigum á undan FH þegar þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni fyrir tvískiptingu.

Share this article