Þrír leikir voru spilaðir í Bestu deild kvenna í kvöld þegar 17. umferðin kláraðist. Þróttur vann ÍBV 2-1, Valur hafði betur gegn Þór/KA 1-0 og botnlið Víkings vann FH 1-0. FH-ingar eru í harðri toppbaráttu og eftir tap Breiðabliks fyrir Stjörnunni í gær var ljóst að sigur í kvöld myndi koma þeim aftur upp að hlið Blika með jafn mörg stig á toppnum. Það var hins vegar Bergdís Sveinsdóttir sem skoraði eina mark leiksins fyrir Víkinga á 22. mínútu. FH-ingar fengu tækifæri til að jafna metin undir lok leiks þegar þær fengu vítaspyrnu en Telma Ívarsdóttir varði frá Ásdísi Karen Halldórsdóttur og 1-0 sigur Víkinga staðreynd. Stigin eru mikilvæg fyrir Víkinga í botnbaráttunni en liðið er nú með 14 stig í botnsætinu, tveimur stigum á eftir Val og Fram sem eru þar fyrir ofan. Mikilvæg stig Þróttar ÍBV gat komið sér upp í þriðja sæti deildarinnar með sigri á Þrótti í Vestmannaeyjum en Þróttarar voru í 7. sæti fyrir leikinn. Björg Gunnlaugsdóttir kom gestunum úr Laugardalnum yfir á 21. mínútu og sjö mínútum síðar tvöfaldaði Sæunn Björnsdóttir forystuna með marki beint úr hornspyrnu. Eyjakonur minnkuðu muninn á 80. mínútu með marki Milenu Patru, líka eftir hornspyrnu. Það var hins vegar ekki nóg og Þróttur sótti þrjú mikilvæg stig í baráttu sinni við að vera í efri hlutanum þegar deildin skiptist í tvennt en efstu sex sætin munu leika í efri hlutanum. Þróttur er nú í 6. sæti með 21 stig, þremur stigum meira en Þór/KA í 7. sæti en Norðankonur töpuðu fyrir Val 1-0 í kvöld.