Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kólumbía: Hafa áhyggjur af ásælni glæpahópa í börn eftir jarðskjálfta

Read Full Article →

Hreinsunarstarf er hafið í Kólumbíu eftir öflugan jarðskjálfta sem reið yfir fyrir viku. Borgin Pereira, í vesturhluta landsins, varð einna verst úti í skjálftanum sem var 7,4 að stærð. Borgin er í stærsta kaffiræktunarhéraði landsins og aðeins 55 kílómetra frá miðju skjálftans. Björgunarlið hafa leitað þeirra sem enn er saknað, í kappi við tímann, en vonir um að finna fólk á lífi hafa dvínað mikið. Yfirvöld gáfu íbúum leyfi til þess að sækja persónulega muni í skemmdar byggingar í gær. Hreinsunarstarf er hafið í Kólumbíu eftir öflugan jarðskjálfta sem reið yfir fyrir viku. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, óttast áhrif og eftirköst skjálftans á börn. UNICEF hefur starfað í Pereira og Cali í tuttugu ár Borgin Cali, sem er þriðja stærsta borg landsins, varð einnig illa úti í skjálftanum. Þar hafa björgunarlið þurft að beita handafli til að finna fólk í rústum húsa. Íbúum sem geta ekki snúið aftur til síns heima hefur verið komið fyrir á íþróttaleikvöngum þar sem þeir fá mat, föt og hreinlætisvörur. Staðfest er að 287 létust í skjálftanum, hátt í 4000 slösuðust og 500 er enn saknað. Þrettán þúsund heimili skemmdust. Tanya Chapuisat, starfar sem fulltrúi UNICEF, í vesturhluta Kólumbíu þar sem borgirnar Pereira og Cali eru. Hún segir í samtali við fréttastofu að hún óttist áhrif og eftirköst skjálftans á börn. Þúsundir barna hafa orðið fyrir áhrifum skjálftans og ætla má að 800 skólar hafi orðið fyrir skemmdum og þeim hefur víða verið lokað. Helstu verkefni UNICEF hafa verið í borgunum Pereira og Cali. Fjöldi hjálparsamtaka að sinna mikilvægum verkefnum Tanya segir að helsta áhersla UNICEF á þeim svæðum sem urðu verst úti í skjálftanum sé á að koma drykkjarvatni og hreinlætisvörum til fjölskyldna. Hún segir að helstu áhyggjurnar snúi þó að áhrifum skólalokana á börn og daglegt líf þeirra. Því lengur sem skólarnir séu lokaðir því meiri tíma fái glæpahópar til að hneppa börn í vinnu hjá sér. Skemmdir á mikilvægum innviðum hafa valdið því að vatn og rafmagn eru af skornum skammti, erfiðara er að fá heilbrigðisþjónustu og að meta hjálparþarfir fólks í dreifðari byggðum vegna lélegra fjarskipta. UNICEF hefur í tuttugu ár starfað á þeim svæðum sem urðu verst úti í skjálftanum. Tanya segir að þrátt fyrir að verkefnin sé ærin séu fjöldi öflugra, alþjóðlegra hjálparsamtaka að störfum í landinu sem sinni þeim af heilindum.

Share this article