Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsta tap FH síðan í maí

Read Full Article →

Víkingur styrkti stöðu sína á toppi Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld með 4-2 sigri á FH í Kaplakrika og bundu Íslandsmeistararnir um leið enda á níu leikja taplausa hrinu Hafnfirðinga. FH hafði ekki tapað í Bestu deildinni frá 29. maí og hafði leikið níu deildarleiki í röð án taps, unnið þrjá þeirra og gert sex jafntefli. Víkingar stöðvuðu þá hrinu í Kaplakrika og nýttu um leið tækifærið til að auka forskot sitt á toppi deildarinnar. FH komst yfir með marki Ísaks Óla Ólafssonar á 31. mínútu en Helgi Guðjónsson jafnaði fyrir Víking fimm mínútum síðar. Gylfi Þór Sigurðsson kom Víkingum í 2-1 rétt fyrir hlé og Gunnar Vatnhamar bætti þriðja markinu við snemma í síðari hálfleik. Adolf Daði Birgisson minnkaði muninn í 3-2 áður en Valdimar Þór Ingimundarson innsiglaði 4-2 sigur Víkinga undir lokin. KR - Breiðablik 3-3 Næstu keppinautar Víkinga í toppbaráttunni, KR, urðu hins hins vegar af tveimur stigum í toppbaráttunni þegar þegar þurftu að sætta sig við jafntefli gegn Breiðabliki á Meistaravöllum, 3-3 . Blikar byrjuðu mun betur og Kristófer Ingi Kristinsson skoraði tvívegis og kom gestunum í 2-0. Höskuldur Gunnlaugsson hafði þess á milli fengið tækifæri til að skora úr vítaspyrnu en Halldór Snær Georgsson varði frá honum. Eiður Gauti Sæbjörnsson minnkaði muninn fyrir KRí 2-1 áður en Ágúst Orri Þorsteinsson kom Breiðabliki í 3-1 rétt fyrir hálfleik. KR-ingar komu hins vegar af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn. Ástbjörn Þórðarson og Aron Sigurðarson skoruðu með aðeins mínútu millibili og jöfnuðu metin í 3-3 þegar um tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Fleiri urðu mörkin ekki og niðurstaðan því sex marka jafntefli, 3-3. Skagamenn óstöðvandi ÍA sótti þrjú mikilvæg stig til Vestmannaeyja með sigri á ÍBV á Hásteinsvelli og heldur þar með áfram góðu gengi sínu. Haukur Andri Haraldsson kom ÍA yfir í fyrri hálfleik og Markús Páll Ellertsson tvöfaldaði forystuna snemma í þeim síðari. Omar Sowe minnkaði muninn fyrir ÍBV áður en Viktor Jónsson innsiglaði 3-1 sigur Skagamanna. Skagamenn hafa nú unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og eru komnir upp í 5. sæti. Staðan í Bestu deild karla.

Share this article