Security News

Cybersecurity news aggregator

🏦
INFO News Mbl Innlent

Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári

  • What: Insurance claims have tripled in half a year
  • Impact: Economic concerns in Iceland
Read Full Article →

Viðskipti | Morgunblaðið | 17.8.2026 | 8:40 Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI), segir stöðuna sýna hversu mikið álag sé á greininni og varar við því að Seðlabankinn hækki vexti þegar peningastefnunefnd bankans tilkynnir næstu vaxtaákvörðun í vikunni. mbl.is/Eggert Matthías Johannessen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Verðbólguvæntingar alls ekki á niðurleið Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Spá mestu verðbólgu síðan 2024 » Fleiri tengdar fréttir Alvarleg vanskil byggingariðnaðarins hjá stóru viðskiptabönkunum þremur hafa nær þrefaldast á fyrri helmingi ársins og námu 29,7 milljörðum króna um mitt ár, samanborið við 9,3 milljarða um síðustu áramót. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI), segir stöðuna sýna hversu mikið álag sé á greininni og varar við því að Seðlabankinn hækki vexti þegar peningastefnunefnd bankans tilkynnir næstu vaxtaákvörðun í vikunni, miðvikudaginn 19. ágúst. „Þegar vanskilahlutfall þrefaldast á hálfu ári er ljóst að þolmörkin eru að nálgast hjá hluta greinarinnar,“ segir Sigurður í samtali við Morgunblaðið. Frétt af mbl.is Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Þrenns konar áhrif Vanskilahlutfall byggingariðnaðarins hefur farið úr 2,3% í 6,2% á sex mánuðum. Á sama tíma hafa skuldir greinarinnar aukist um 74 milljarða króna. Sigurður segir þessa þróun eiga sér stað samhliða því að raunverð íbúða lækki, sölutími lengist og óseldum íbúðum fjölgi. Spurður hvaða áhrif það hefði ef Seðlabankinn hækkaði vexti í vikunni segir Sigurður þau einkum þrenns konar. „Það hækkar fjármagnskostnað fyrirtækja sem þegar eru undir þrýstingi, það dregur úr fjárfestingu og það sendir þau skilaboð inn í endurskoðun kjarasamninga og fjárlagavinnuna að Seðlabankinn ætli einn að bera byrðina af hjöðnun verðbólgunnar.“ Hann segir síðastnefnda atriðið ef til vill alvarlegast. Frétt af mbl.is Atvinnuleysi eykst um 29% Óvíst með þrot en tölurnar tali sínu máli Sigurður vill ekki spá því hvort fyrirtæki í byggingariðnaði stefni í þrot en segir vanskilatölurnar tala sínu máli. „Spurningin sem við beinum til stjórnvalda er einföld: Hvað vinnst með því að þrengja enn frekar að greininni sem á að byggja íbúðirnar sem okkur vantar?“ Hann segir hættu á að of hart aðhald vinni til lengri tíma gegn markmiði peningastefnunnar sjálfrar. Dragist íbúðauppbygging saman vegna hárra vaxta verði færri íbúðir tilbúnar þegar eftirspurn tekur aftur við sér. Það geti síðan aukið þrýsting á íbúðaverð. „Færri íbúðir í byggingu núna þýða minna framboð þegar eftirspurnin tekur við sér sem mun setja þrýsting á verð til hækkunar.“ Sigurður bendir einnig á að atvinnuleysi hafi þegar aukist hratt. Það mældist 5% í júní og hafði aukist um 2,1 prósentustig á einu ári. Hann vill ekki spá fyrir um hversu mikið atvinnuleysi gæti aukist til viðbótar en bendir á að byggingariðnaður sé vinnuaflsfrek grein og því komi áhrifin hratt og sterkt fram. „Þróunin síðustu 12 mánuði sýnir hversu hratt vinnumarkaðurinn getur gefið eftir þegar aðhaldið er þétt.“ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins. mbl.is/Árni Sæberg Kallar eftir þjóðarsátt Sigurður segir SI kalla eftir þjóðarsátt um að ná niður verðbólgu þar sem stjórnvöld, vinnumarkaðurinn og Seðlabankinn leggi sitt af mörkum. Stjórnvöld þurfi að sýna aðhald í ríkisfjármálum og forðast auknar álögur á fólk og fyrirtæki. Aðilar vinnumarkaðarins þurfi að verja kaupmátt með stöðugleika og aukinni framleiðni fremur en nafnlaunahækkunum sem verðbólgan éti upp. Þá þurfi Seðlabankinn að veita skýra og trúverðuga leiðsögn um hvað samrýmist verðbólgumarkmiðinu. „Þetta snýst ekki um að einhver gefi eftir heldur um að við finnum samhljóminn um framfarir og bætt lífskjör. Lausnirnar eru til. Það er okkar að koma vilja í verk,“ segir Sigurður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Verðbólguvæntingar alls ekki á niðurleið Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Kalla eftir óbreyttum stýrivöxtum Landsbankinn spáir vaxtahækkun í næstu viku Spá mestu verðbólgu síðan 2024 » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Vísindi, skáldskapur og mannfjöldaþróun Sigurður Már Jónsson Ræður Þýskaland of miklu innan ESB? Fleira áhugavert Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig „Ávísun á leigumorðingja“ Kolrassa krókríðandi reimar á sig skóna Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Getur farið á hvorn veginn sem er Ísland má ekki heltast úr lestinni Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Verðbólguvæntingar alls ekki á niðurleið Korda tekur til starfa í september Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Getur farið á hvorn veginn sem er Ísland má ekki heltast úr lestinni Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Korda tekur til starfa í september Verðbólguvæntingar alls ekki á niðurleið Svali og Þórunn til Íslandsbanka Snerti taug í mörgum í salnum Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Guðrún Gígja ráðin yfirlögfræðingur Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Snerti taug í mörgum í salnum Brugðust þegar mest á reyndi Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Getur farið á hvorn veginn sem er Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland má ekki heltast úr lestinni Engar stórar U-beygjur Pistlar » Sigurður Már Jónsson Vísindi, skáldskapur og mannfjöldaþróun Sigurður Már Jónsson Ræður Þýskaland of miklu innan ESB? Fleira áhugavert Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Versta umferðarslys Ungverjalands í 23 ár Hiti allt að 20 stigum Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Getur farið á hvorn veginn sem er Ísland má ekki heltast úr lestinni Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Verðbólguvæntingar alls ekki á niðurleið Korda tekur til starfa í september Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Getur farið á hvorn veginn sem er Ísland má ekki heltast úr lestinni Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Korda tekur til starfa í september Verðbólguvæntingar alls ekki á niðurleið Svali og Þórunn til Íslandsbanka Snerti taug í mörgum í salnum Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Guðrún Gígja ráðin yfirlögfræðingur Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Snerti taug í mörgum í salnum Brugðust þegar mest á reyndi Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Getur farið á hvorn veginn sem er Vanskil og hagkerfið kólnar hratt Helga Dís ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland má ekki heltast úr lestinni Engar stórar U-beygjur

Share this article