Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnaður breskra húsbyggjenda dregst saman

Read Full Article →

Talið er að hagnaður stærstu byggingarfyrirtækja Bretlands muni dragast saman um 12% á þessu ári vegna þrálátra kostnaðarhækkana og lítillar eftirspurnar eftir húsnæði. Samkvæmt Financial Times gerir RBC Capital Markets ráð fyrir að samanlagður leiðréttur rekstrarhagnaður átta stærstu skráðu félaganna muni nema 2,3 milljörðum punda árið 2026, samanborið við 2,6 milljarða í fyrra. Kostnaður við byggingarefni, vinnuafl og byggingarsvæði hefur undanfarin fimm ár hækkað meira en íbúðaverð. Samtök húsbyggjenda áætla að efnis- og launakostnaður hafi aukið byggingarkostnað nýrrar íbúðar um 37.000 pund, eða um 6,3 milljónir íslenskra króna, frá 2020. Átök í Mið-Austurlöndum hafa átt þátt í að halda uppi vöxtum húsnæðislána og vaxtalækkunarferli Englandsbanka hefur stöðvast. Slæmt árferði gæti torveldað áform nýs forsætisráðherra, Andy Burnham, um mesta átak í byggingu félagslegra íbúða frá stríðslokum. RBC spáir þó að fullgerðum íbúðum fjölgi um eitt prósent og verði nemi tæplega 73 þúsund á árinu. Skýringin er aukin sala heilla íbúðaklasa til fyrirtækja með afslætti. Þannig losa verktakar óseldar íbúðir og afla fjár, en fórna framlegð. Í London voru 12% íbúða sem ætlaðar voru einstaklingum seldar til fyrirtækja með þessu fyrirkomulagi á tólf mánaða tímabilinu til 30. júní, samanborið við 7% á næstu tólf mánuðum þar á undan Byggingarfyrirtækið Bellway fjölgaði fullgerðum íbúðum um nær 11% á ársgrundvelli með hjálp heildsölu íbúða. Á fyrri helmingi ársins voru 2.766 nýbyggingarverkefni skráð á fasteignavefnum Rightmove, 4% færri en sex mánuðum áður. Nýbyggðar íbúðir eru nú settar á markað í minna mæli en nokkru sinni frá upphafi mælinga.

Share this article