Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mál hjóna sem skildu barn eftir í bíl við Ófærufoss á borði breskra yfirvalda

Read Full Article →

Ekki náðist að hafa uppi á breskum hjónum sem grunuð eru um að hafa skilið eftir fimm ára dreng í bíl á meðan þau fóru í göngu að Ófærufossi. Fjölskyldan yfirgaf landið áður en lögreglan á Suðurlandi hafði hendur í hári þeirra. Íris Edda Hemisdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir málinu lokið hjá þeim. Hjónin voru grunuð um brot á barnaverndarlögum og segir Íris miður að ekki hafi náðst að hafa uppi á þeim. Vitni og hluteigendur voru tekin í skýrslutöku og hefur málið verið sent áfram til breskra stjórnvalda sem hafa kost á að taka það upp. Málið vakti töluverða athygli fyrr í mánuðinum. Kona sem fann drenginn grátandi á bílaplaninu sagði frá því á Facebook að bresk hjón frá Lúndúnum hefðu skilið fimm ára drenginn einan eftir í bíl og farið í göngu að Ófærufossi. Konan sagði hjónin hafa sagt að þau hefðu oft gert slíkt án vandræða. Lögreglan á Suðurlandi reyndi að hafa uppi á hjónunum og sagðist líta málið alvarlegum augum. Önnur lögregluembætti aðstoðuðu við leitina en án árangurs.

Share this article