Innlent | mbl | 17.8.2026 | 16:20 Grunuð um að yfirgefa fimm ára barn Lögreglan á Suðurlandi hefur lokið rannsókn máls sem snýr að grun um að foreldrar hafi skilið fimm ára gamalt barn eftir í bifreið við Ófærufoss. mbl.is/Eggert Jóhannesson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Mál breskra hjóna, sem liggja undir grun um að hafa skilið fimm ára gamalt barn eftir í bílaleigubifreið sinni á meðan þau gengu að Ófærufossi í ánni Nyrðri-Ófæru í Eldgjá í Vestur-Skaftafellssýslu 9. ágúst, er nú komið á borð breskra yfirvalda. Frá þessu segir Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, mbl.is en það var RÚV sem fyrst skýrði frá málinu . „Málið kom upp hjá okkur daginn eftir og það var landvörður þarna á svæðinu sem tilkynnti um það,“ segir aðalvarðstjóri. Lögregla hafi þegar tekið að leita bifreiðar fólksins og Suðurlandsembættið sett sig í samband við önnur embætti í því augnamiði að rekja ferðir fólksins. Embættið hafi lokið rannsókn sinni „Ekki tókst að hafa uppi á fólkinu, þau voru farin af landi brott, en við settum okkur þá í samband við breska sendiráðið þar sem grunur lék á að um breska ferðamenn væri að ræða og höfum unnið málið í samstarfi við sendiráðið,“ segir Íris Edda. Hún segir sitt embætti hafa lokið rannsókn málsins, rætt við vitni og látið gögn af hendi sem send hafi verið viðeigandi yfirvöldum í Bretlandi kjósi þau að taka málið upp sín megin. „Þannig er málið afgreitt frá okkur,“ segir hún enn fremur, „við unnum þetta eins langt og við gátum og gerðum það sem okkur ber, rannsökuðum brotið sem grunur leikur á að framið hafi verið.“ Sönnun ekki endilega snúin Fékk lögregla upplýsingar frá bílaleigu hér á landi um nöfn leigutaka og segir Íris Edda aðspurð að sönnunarfærsla í málinu þurfi ekki endilega að vera snúin. „Það þarf ekki endilega að vera, við erum með vitnaframburð sem þyrfti hins vegar bara að koma til skoðunar á síðari stigum. Svo veit maður aldrei hvort þetta geti verið síðasta púslið í einhverju mengi annars staðar, við gerum bara okkar allra besta í að vernda hagsmuni þessa barns sem um ræðir, það er það sem skiptir máli,“ segir Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri af máli sem nú er í höndum breskra yfirvalda. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grunuð um að yfirgefa fimm ára barn Reykjavíkurmaraþonið í beinni útsendingu Keflvíkingar fá markvörð Forsætisráðherrann sendi skilaboð á svikahrapp Íslenska þorpið er staður lífsgæðanna Umræðan Eitt lag enn Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verstu gróðureldar í Belgíu í heila öld Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Reyndu að smygla kílói af kókaíni til Íslands „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Segir mannát hreinan uppspuna Andlát: Bogi Ísak Nilsson Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Nýjast á mbl.is » Grunuð um að yfirgefa fimm ára barn Reykjavíkurmaraþonið í beinni útsendingu Keflvíkingar fá markvörð Forsætisráðherrann sendi skilaboð á svikahrapp Íslenska þorpið er staður lífsgæðanna Umræðan Eitt lag enn Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur minni hita í umræðunni en í öðrum kosningum Verstu gróðureldar í Belgíu í heila öld „Reyðarjárn“ úr langreyði Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Segir mannát hreinan uppspuna Andlát: Bogi Ísak Nilsson Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys