Innlent | Morgunblaðið | 17.8.2026 | 21:00 Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Sveinn fékk hinn kunna skrúðgarðyrkjumeistara Kristínu Auði Kelddal til liðs við sig og blés til grjóthleðslunámskeiðs í Höfnum. mbl.is/Anton Brink Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta byrjaði allt þannig að fyrir tíu árum var ég alltaf á leið á grjóthleðslunámskeið í Skagafirði en átti svo eitt barn og svo kom annað og fjölskylduhagir leyfðu aldrei að fara norður í land að læra hleðslu,“ segir Sveinn Enok Jóhannsson hjá fyrirtækinu Fornverki í Höfnum í Reykjanesbæ í samtali við Morgunblaðið enda brá hann að lokum á það ráð að halda sitt eigið námskeið í hinum fornfræga Hafnahreppi sem nú heyrir sögunni til. „Ég fékk mig eiginlega fullsaddan, hér hjá mér er fullt af hlöðnum görðum og tóftum, svo ég ákvað bara að halda þetta sjálfur og fór að leita að meistara á netinu,“ heldur Sveinn áfram og varð útkoman úr þeirri leit engin önnur en skrúðgarðyrkjumeistarinn Kristín AuðurKelddal Elíasdóttir sem Sveinn hringdi þegar í. mbl.is/Anton Brink Ótrúlegustu menn Málið var þó ekki auðsótt, Kristín var önnum kafin og kveðst Sveinn hafa varið fjórum vikum í að eggja skrúðgarðyrkjumeistarann til að taka að sér verkið. „Loksins kom hún út í Hafnir og leist rosalega vel á efniviðinn eins og svo mörgum öðrum,“ heldur Sveinn frásögninni áfram. mbl.is/Anton Brink „Í Höfnum eru hlaðnir garðar um allt, þar hefur verið búseta frá landnámi og lengur, og við héldum tvö námskeið fyrsta árið. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera en námskeiðin voru vel sótt og þar birtust ótrúlegustu menn, alþingismenn og lögreglustjórar, menn á reynslulausn með ökklaband og allt þar á milli. Þetta er eins og að fara í heitan pott í sundi, þar eru allir aular en sameinast um að læra þetta frá byrjun og Kristín er einstaklega hæfileikarík og lunkin,“ segir Sveinn af einlægni og ber meistaranum vel söguna. Námskeiðahaldið vatt upp á sig og annað árið voru fjögur námskeið haldin. Verktakafyrirtæki á Selfossi sendi þá fimm manns á námskeið. 140 manns í gegn Eftir ár tvö í hleðslunni missti Sveinn vinnuna og gat því einhent sér í hleðslumál. Sótti hann um fjölda styrkja til verksins og nú standa leikar svo að í gær lauk áttunda námskeiðinu í Höfnum. Mætti þar kannski segja að málin væru í höfn en þarna er um að ræða fjögur grjóthleðslunámskeið í umsjá Kristínar, tvö námskeið í grindasmíði úr rekaviði sem Snædís Traustadóttir húsasmíðameistari hefur kennt, sérfræðingur í viðhaldi gamalla húsa, menntuð í þeim fræðum í Noregi, auk þess sem Bandaríkjamaðurinn Dan Snow hefur kennt tvö námskeið sem gestakennari í gerð listaverka úr grjóti. Þar með hafa 140 manns lokið námskeiðum á vegum Sveins og samstarfsfólks hans í Höfnum og er hann hvergi nærri hættur. mbl.is/Anton Brink mbl.is/Anton Brink mbl.is/Anton Brink Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vendingar í toppbaráttunni í 1. deildinni Réttarhöldum í ríkismáli Mangione frestað Framarar upp að hlið KR-inga Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Vígamenn drápu hátt í 30 manns í Nígeríu Umræðan Eitt lag enn Dugar sæti við borðið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dregur úr æfingum vegna sambandsins við Kim „Þetta var svo ofboðslega sárt“ „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Málið komið á borð breskra yfirvalda Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Nýjast á mbl.is » Vendingar í toppbaráttunni í 1. deildinni Réttarhöldum í ríkismáli Mangione frestað Framarar upp að hlið KR-inga Lögreglustjórar og menn á reynslulausn Vígamenn drápu hátt í 30 manns í Nígeríu Umræðan Eitt lag enn Dugar sæti við borðið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Mest lesið Í gær Í vikunni Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hiti allt að 20 stigum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys