Innlent | mbl | 6.7.2026 | 10:00 Kennir aldagamlar grjóthleðsluaðferðir Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir grjóthleðslukona. Efri mynd hægra megin er af hluta af fjárrétt í Höfnum á Reykjanesi, neðri myndin er æðakolluveggur í Vigur í Ísafjarðardjúpi. Samsett mynd/Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir segir mikilvægt að varðveita aldagamlar grjóthleðsluaðferðir Íslendinga, þær geymi bæði menningu okkar Íslendinga og sögu. „Við reynum að gera þetta með sama hætti og með sömu verkfærum og gert var áður,“ segir Kristín í samtali við mbl.is. Kristín, sem er hleðslusérfræðingur og skrúðgarðyrkjumeistari, stendur fyrir fjölda grjóthleðslunámskeiða víða um land allt í sumar og verður eitt slíkt núna 10. til 12. júlí í Höfnum á Suðurnesjum. Iðan, í samstarfi við Fornverk í Höfnum, stendur fyrir þessu þriggja daga grjóthleðslunámskeiði þar sem Kristín kennir þátttakendum að hlaða grjót með hefðbundnum íslenskum hleðsluaðferðum með áherslu á nákvæm vinnubrögð. Kristín hefur víðtæka reynslu af endurhleðslu og varðveislu grjóthleðslumannvirkja út um allt land. Hún hefur unnið við grjóthleðslu í meira en 20 ár og kennir yfirleitt sex til átta grjóthleðslunámskeið yfir sumartímann. Þessi mynd er af gömlu húsi í Tálknafirði sem endurhlaðið er með því grjóti sem það var upphaflega byggt úr. Í verkum sem þessum er reynt að bæta sem minnstu grjóti við. Ljósmynd/Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir Rífa niður til þess að byggja upp Í samtali við mbl.is segist Kristín meðal annars vera þessa dagana að undirbúa grjóthleðslunámskeið í Brekkudal á Dýrafirði en sjálf er hún einmitt Dýrfirðingur. Fyrir utan námskeiðið í Höfnum verður hún svo með námskeið víðar um landið, meðal annars seinni part sumars á Djúpavogi. Kristín segir að grjóthleðslunámskeið séu yfirleitt tveir dagar en hún vill þó hafa sín námskeið þrjá daga til þess að gefa þátttakendum tækifæri til þess að læra ekki einungis að hlaða heldur einnig hvað veldur því að hleðslur hrynji. Þannig notar hún fyrsta daginn til að láta nemendur sína rífa niður hleðslur, „ýmist alveg niður í grunn eða ofan af því“. „Ég vil nota einn dag í að rífa niður áður en við förum að endurbyggja,“ segir Kristín. Mikilvægt sé að skilja hvers vegna hleðsla hefur gefið sig til þess að geta hlaðið eitthvað sem endist lengi. Kristín segir vel hlaðnar grjóthleðslur eiga að standa í að minnsta kosti 100 ár. Hér má sjá hús að Hóli í Arnarfirði sem Kristín hlóð. Ljósmynd/Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir Grjóthleðsla á gamla mátann Hún vill helst ekki hafa fleiri en 10 nemendur á hverju námskeiði, nemendanna vegna sé betra að vera færri en fleiri til þess að þeir fái sem besta tilsögn. Eins og áður sagði hefur Kristín lengi unnið við að hlaða grjót. Aðferðin sem hún kennir á námskeiðinu í Höfnum er þó ekki sú sama og hún notast almennt við. „Þarna erum við ekki að nota verkfæri, annað en járnkarl og kúbein og svoleiðis, af því að fólk var ekkert með þessa handmeitla og vélar fyrir hundrað árum,“ útskýrir hún. „Við reynum að gera þetta með sama hætti og með sömu verkfærum og gert var áður,“ segir Kristín. Hún segist þó stundum notast við nútímalegri aðferðir og verkfæri þegar hún vinnur sjálf grjóthleðsluverkefni. „En af því að það var ekki til þá, notum við það ekki núna.“ Kristín segist vera forn í sér og fyrir henni er mikilvægt að þessar fornu hleðsluaðferðir glatist ekki. „Það er svo mikil menning á bak við þetta, þetta er bara okkar saga,“ segir hún að lokum. Áhugasamir geta nálgast frekari upplýsingar um námskeiðið á Höfnum hér . Hlaðinn veggur eftir Kristínu við Útskálakirkju að Garði. Ljósmynd/Kristín Auður Kelddal Elíasdóttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi sögð sterk Svava María ráðin forstöðumaður Forest tilkynnir nýjan stjóra Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Reynir á samstöðu NATO í Ankara Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maður lést á Fimmvörðuhálsi Ánægja með afturköllun Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun Vilja ný tilboð í tröppurnar Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi sögð sterk Svava María ráðin forstöðumaður Forest tilkynnir nýjan stjóra Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Reynir á samstöðu NATO í Ankara Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Allt járn var orðið ryðgað“ Tveir gistu í klefa í nótt: Grunur um líkamsárás Tók miklum breytingum: Rétt að staldra við Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun Vilja ný tilboð í tröppurnar Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum