Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Framarar upp að hlið KR-inga eftir sigur á Stjörnunni

Read Full Article →

Fram vann Stjörnuna 3-1 í lokaleik 19. umferðar Bestu deildar karla í Úlfarsárdal. Róbert Hauksson kom Frömurum yfir á 12. mínútu en Emil Atlason jafnaði á 34. mínútu. Róbert skoraði annað mark sitt og annað mark Fram á 39. mínútu og heimamenn leiddu 2-1 í hálfleik. Framarar fagna markiRÚV / Mummi Lú Már Ægisson skoraði eftir vel útfærða skyndisókn á 62. mínútu og tryggði Fram 3-1 sigur. Fram er áfram í þriðja sæti deildarinnar, með 40 stig líkt og KR en lakari markatölu. Liðin eru 8 stigum frá toppliði Víkinga. Stjarnan er í 8. sæti með 21 stig. Fyrr í kvöld gerðu Valur og KA 4-4 jafntefli .

Share this article