Í síðustu viku féll dómur yfir tveimur erlendum mótmælendum sem fóru um borð í hvalveiðiskip og neituðu að yfirgefa það. Þær fengu vægan dóm – 200 þúsund króna sekt. Kannski hefur einhver tekið eftir því að ég nefndi sérstaklega að þetta hefðu verið erlendir mótmælendur. Það geri ég því að ekki allir gera sér grein fyrir íslenskum aðstæðum. Til dæmis því að þessar veiðar hafa verið samþykktar af stjórnvöldum og ganga ekki of nærri stofni langreyða. Mótmælendurnir þurfa þó varla að hafa áhyggjur af sektinni. Þegar hefur verið sett af stað söfnun og búið er að safna fyrir sektinni – hundraðfalt. Það er mikil gæfa fyrir okkur að eiga rausnarlega útlendinga sem vilja aðstoða okkur Íslendinga við að taka „réttar ákvarðanir“. Einn þeirra, Alex Taylor, berst gegn fiskeldi í sjó og notar til þess auðæfi sín. Hann var gestur í hlaðvarpi sem kallast The last salmon . Hann skilur ekki að Íslendingar skuli vilja skapa störf með fiskeldi. Það er óþarfi. Í hans huga er lausnin einföld. Það er hægt að byggja gróðurhús í staðinn fyrir vestan. Það er, samkvæmt honum, ekkert mál. Eins og hann segir sjálfur: „Það þyrfti ekki stórt gróðurhús til að búa til grænmeti fyrir allt Ísland.“ Eitt gróðurhús, með 50 starfsmenn, myndi nægja til að framleiða grænmeti fyrir allt Ísland! Nú væri vissulega gaman ef þessi ágæti maður myndi heimsækja Vestfirði, þar sem ekki er hitaveita, eins og við þekkjum hér í höfuðborginni. Í lok síðasta árs drápust líka þúsundir fiska í landeldi af því að það hefur ekki verið hægt að tryggja öruggt rafmagn á svæðinu. Þegar Taylor talar um landflæmið á Vestfjörðum fyrir gróðurhúsin er líklegt að þeir sem raunverulega búi þar klóri sér í kollinum. Svo er líka pæling að kynna sér málin.