Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

María gengur til liðs við Athygli

Read Full Article →

María Klara Jónsdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli. Hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði samskipta, stefnumála og stjórnendaráðgjafar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Athygli. Víðtæk reynsla hennar af mannauðsmálum, vinnurétti, lögmennsku og stjórnun er sögð styrkja enn frekar fjölbreytt ráðgjafarteymi Athygli. María Klara kemur til Athygli frá ráðgjafarfyrirtækinu Attentus, þar sem hún hefur undanfarin fimm ár veitt ráðgjöf á sviði mannauðsmála og vinnuréttar. Áður starfaði hún sem héraðsdómslögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni og sem lögfræðingur endurupptökunefndar. Þar áður gegndi hún starfi mannauðsstjóra flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair. ,,María Klara býr að mikilsverðri reynslu úr íslensku atvinnulífi og bætist nú í öflugan hóp ráðgjafa Athygli. Við leitum sífellt leiða til að bæta þjónustu okkar með framúrskarandi fólki og mun María Klara spila þar stórt hlutverk," segir Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Athygli. María Klara lauk BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 og meistaragráðu í lögfræði frá sama skóla árið 2014. Hún hefur jafnframt aflað sér málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi.

Share this article