Fjórtán einstaklingar á lista yfir forstjóra í Tekjublaði Frjálsrar verslunar voru með yfir 10 milljónir króna í reiknuð mánaðarlaun út frá greiddu útsvari í fyrra. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í morgun eru Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marels, Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, og Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, efstir á listanum. Þeir voru allir með yfir 30 milljónir króna á mánuði. Sjá einnig Tekjuhæstur annað árið í röð Af öðrum forstjórum með yfir 10 milljónir á mánuði var mesta stökkið milli ára hjá Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga. Hún var með 12,6 milljónir króna á mánuði í fyrra, samanborið við 4,4 milljónir á mánuði árið áður. Drangar er smásölusamstæða sem stofnuð var í kringum kaup Orkunnar á Samkaupum í fyrra. Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, tók einnig mikið stökk milli ára og var með 10,6 milljónir á mánuði, samanborið við 3,8 milljónir árið áður. Meðal annarra á forstjóralistanum með yfir 10 milljónir króna á mánuði er Kári Stefánsson, sem lét af störfum sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í maí 2025. Hann var með 10 milljónir á mánuði í fyrra miðað við greitt útsvar, samanborið við 13,5 milljónir árið 2024. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.