Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fimm ríkisforstjórar með yfir 4 milljónir á mánuði

Read Full Article →

Tryggvi Þór Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Rarik, var tekjuhæsti forstjóri ríkisfyrirtækja í fyrra samkvæmt úttekt Tekjublaðs Frjálsrar verslunar. Tekjur hans á mánuði námu að jafnaði tæplega 4,6 milljónum króna á síðasta ári miðaða við greitt útsvar, samanborið við 3,5 milljónir árið 2024. Í öðru sæti á listanum er Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, en mánaðartekjur hennar námu 5,6 milljónum króna árið 2025. Þorgerður Kristín tók við sem forstjóri ríkiseinokunarverslunarinnar í september á síðasta ári en var áður framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar frá árinu 2014. Til samanburðar námu tekjur hennar 3,1 milljón á mánuði árið 2024. Í þriðja sætinu kemur svo Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sem var með 4,7 milljónir á mánuði í fyrra. Hann sat í toppsæti listans í fyrra og var þá með 4,6 milljónir í mánaðartekjur. Guðmundur Ingi Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri Landsnets, var með 4,2 milljónir á mánaðarlaun í fyrra en hann lét af störfum í ágúst á síðast ári. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, var með tæplega 4,1 milljón á mánuði í fyrra og Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, var með 3,9 milljónir. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article