Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Markmið mitt er fleiri litir í Reykjavík“

  • What: Artist's mural project in Reykjavik
  • Impact: No security relevance or technical content
Read Full Article →

Spænski listamaðurinn Juan Arctic, sem búsettur hefur verið á Íslandi í áratug, hefur sett sérstakan og litríkan svip á Reykjavíkurborg og nágrenni með útilistaverkum sínum. Juan, sem er með menntun í myndlist frá heimalandi sínu, hefur málað fjölda þekktra veggverka sem vekja athygli og kæta vegfarendur. Þekktasta verk hans er Super Mario Bros- veggmyndin við Hofsvallagötu, sem hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum og orðið að vinsælum viðkomustað ferðamanna. Meðal annarra áberandi verka Juans má nefna gaflinn við Tjarnarbíó, risaeðlur á Laugavegi, og gafl við Strandgötu í Hafnarfirði sem vísar í íslenska listasögu. Juan segir íslenska náttúru og dýralíf vera í miklu uppáhaldi, en aðalástæða hans fyrir verkunum sé einföld: „Markmið mitt er fleiri litir í Reykjavík.“

Share this article