Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vona að hægt verði að gera við lögnina

Read Full Article →

Staðan í vatnsmálum í Vestmannaeyjum er vægast sagt tvísýn eftir að almannavarnalögn, sem verið var að leggja frá Landeyjasandi til Eyja, skemmdist rétt norðan Elliðaeyjar. Vatnslögn sem nú er í notkun og var lögð árið 2011 er einungis á hálfum afköstum eftir að skemmdir urðu á henni í nóvember 2023. Gunnar Erlendsson hjá fyrirtækinu GELP í Eyjum telur líklegast að farið verði í viðgerð á nýju lögninni næsta sumar og þegar hún verði komin í gagnið og ekki fyrr verði hægt að ráðast enn fremur í viðgerðir á lögninni frá 2011. GELP er verktakafyrirtæki í Eyjum sem annast neðansjávarverkefni og köfun. Gunnar og starfsmenn hans voru til aðstoðar við útlögnina og fluttu skemmda lögnina síðasta spölinn upp í Skansfjöru í Vestmannaeyjum á laugardag. Ekki er fullljóst hvernig hún skemmdist en leiddar eru líkur að því að slaki hafi komið á hana við útlagningu og í framhaldi hnykkur með þessum afleiðingum. Enn á þó eftir að sannreyna með þrýstiprófunum hvort lögnin geti flutt vatn. „Fyrst lögnin er komin í land á að vera hægt að laga hana þannig að það berist vatn um hana. Takist að laga hana verður hægt að ráðast í það að laga gömlu lögnina sem var lögð 2011. Hún lekur og er aðeins á hálfum afköstum. Við erum með hana á gjörgæslu og til þess að gera við hana verðum við að fá nýju lögnina inn.“ Lögnin tekin á land í Skansfjöru á laugardag. FF MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON Gunnar segir að afhendingartími á nýrri lögn sé um þrjú ár og svo lengi sé ekki hægt að bíða. „Lögnin er heil á um það bil 14 km kafla en biluð á nokkurra metra kafla rétt norðan Elliðaeyjar. Það þarf að laga hana til þess að koma vatni til Eyja en það verður ekki gert fyrr en á næsta ári. Ákjósanlegast er að fara í það verk í maí á næsta ári og á meðan verður sú gamla áfram í gjörgæslu.“ Þar sem lögnin er biluð rétt norðan Elliðaeyjar liggur hún á 54 metra dýpi og þarna eru miklir straumar. Þetta gæti því verið vandasamt verk. Gunnar Erlendsson hjá GELP í Vestmannaeyjum. Gunnar segir að sæta verði lagi og allt verði að fara saman, þ.e.a.s. veður og straumar. Að hans mati yrði best að hefjast handa í maí þegar vænta má skaplegs veðurfars og þá sé líka sumarið fram undan til að vinna að verkinu. „Það ætti ekki að vera mikið mál að klára þetta. Mér sýnist stemning fyrir því að fara þessa leið hvað sem svo síðar verður, það er að segja hvort ráðist verði í þriðju lögnina. En þessi þarf að geta flutt vatn til Eyja svo við getum hafist handa við lagfæringar á eldri lögninni. Þetta ástand eins og það er núna er algjörlega óboðlegt,“ segir Gunnar.

Share this article