Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leita að tímabundnu húsnæði vegna myglu í Dalshrauni

Read Full Article →

Forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar segir unnið að því að finna tímabundið húsnæði fyrir stofnunina. Henni var lokað fyrr í mánuðinum vegna myglu og þjónustan hefur því verið skert. Stöðin annast meðal annars ráðgjöf og greiningu barna með víðtækar þroskaskerðingar og veitir börnum með flóknar eða sjaldgæfar fatlanir langtímaeftirfylgd. Lokað vegna myglu fyrr í mánuðinum Fyrr í ágúst var húsnæði greiningarstöðvarinnar lokað þegar upp kom mygla. Sigurbjörg Fjölnisdóttir, forstjóri Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, segir lokunina hafa þó nokkur áhrif á starfsemina. „Það að geta ekki tekið á móti þeim hjá okkur býr auðvitað til slæma stöðu vegna þess að þá þurfum við annars vegar að geyma ákveðnar athuganir eða viðtöl sem fara fram í húsnæðinu okkar þar sem við erum meðal annars með sérhæfða aðstöðu,“ segir Sigurbjörg. „Hins vegar höfum við þurft að treysta á að taka þessi viðtöl eða athuganir annars staðar.“ Átta hundruð börn á biðlista Hjá stöðinni starfa 55 starfsmenn. Um 350 börn koma í athuganir á ári hverju og á þriðja hundrað eru í langtímaeftirfylgd. Þar að auki eru tæplega átta hundruð á biðlista. Sigurbjörg segir stefnt að því að snúa aftur í gamla húsnæðið um áramótin. Á meðan sé leitað að tímabundinni lausn til að brúa bilið. „Við erum að leita að slíku húsnæði með þeim til þess að við geetum þá farið aftur á vonandi full afköst fram að opnun á þessu þannig að við verðum ekki nema vonandi bara í takmarkaðan tíma í minni afköstum.“

Share this article