Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Geta ekki boðið börnum í greiningu án húsnæðis

Read Full Article →

Starfsemi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar hefur verið verulega takmörkuð í að verða mánuð eftir að mygla greindist í húsnæði starfseminnar í byrjun ágúst. 790 börn með alvarlegar þroskaskerðingar eru á biðlista eftir þjónustu hjá stöðinni, þar af 770 á biðlista eftir greiningu. Sigurbjörg Fjölnisdóttir, forstjóri Ráðgjafar- og greiningarmiðstöðvar, segir að vonir séu bundnar við að nýjar fregnir af húsnæðismálum berist eftir helgi. Hvað er Ráðgjafar- og greiningarstöð? Af vef stöðvarinnar: Hlutverk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar sem leitt geta til fötlunar síðar á ævinni fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra. Ráðgjafar- og greiningarstöð er miðlæg þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem starfar á þverfaglegum grunni og sinnir börnum að 18 ára aldri hvar sem þau búa á landinu. Stofnunin starfar samkvæmt lögum nr. 83 frá árinu 2003 með vísan í breytingu frá 1. janúar 2022 . Hlutverk hennar er meðal annars að annast ráðgjöf og greiningu barna með víðtækar þroskaskerðingar, sinna fræðilegum rannsóknum á þessu sviði og veita börnum með óvenju flóknar eða sjaldgæfar fatlanir langtímaeftirfylgd. Öflun og miðlun þekkingar um fatlanir og þroskaskerðingar og fræðsla um helstu íhlutunarleiðir er enn fremur meðal hlutverka stofnunarinnar. Í venjulegu árferði tekur stöðin átta börn með alvarlegar þroskaskerðingar í greiningu á viku. Sigurbjörg segir flókið að taka börn inn til greiningar vegna skorts á viðeigandi húsakosti, því starfsfólk hafi unnið heiman frá sér frá 7. ágúst. Í ágústmánuði var starfsemi stöðvarinnar takmörkuð við fjögur börn í greiningu á viku. Í þessari viku hafa foreldrar verið upplýstir um að ekki sé hægt að taka á móti börnum þeirra í greiningu, en að nýr tími verði fundinn eins fljótt og auðið er.

Share this article